Haaa...
Ertu búinn að hlaða hana með rafhlöðum?
Þetta er jú rafskaut ekki satt?
Eða kannski norðurskaut og/eða suðurskaut ? Þess ber reyndar að geta að oss er eigi ljóst hvað kona hefði með slík skaut að gera en vekjum þó athygli á að jörðin er kvenkynsorð.
Þetta gefur sögunni um ferðina að miðju jarðar aðra merkingu Glottir eins og fífl
Að vjer tölum nú eigi um orðið Snæfellssjökull...
Andvarpar og hristir höfuðið mæðulega
Jæja. Ég hef víst frestað því of lengi að tala við hann Hilmar litla.
Fer inn til Hilmars til að tala föðurlega um fuglana og býflugurnar
Var annarstaðar umrætt kvöld
Fussar
Er það bara ég eða er tilveran sífellt meira og meira að líkjast mynd eftir Woody Allen? Í stað hefðbundins kynlífs er komið gervikynlíf með hlutum, sumum rafknúnum, sumum handknúnum. Krakkarnir koma ekki lengur undir á Þorrablótum, réttarböllum og útihátíðum heldur koma þau úr djúpfrystu sæði sem sameinast eggfrumu í tilraunaskál og er svo sett í "móðurina" með nýtísku tækjum.
Er þetta góð þróun? Er þetta kannski í samræmi við annað, við étum upphitaða tilbúna rétti, kennda við lýðveldisárið, í stað þess að sjóða fisk og kartöflur eins og í gamla daga. Við sitjum límd við sjónvarp og tölvur í stað þess að fara í Brennó, Bíló, Kýló, Hlaupa í skarðið og Fallin spýta. Gamli góði fótboltinn safnar ryki meðan við spilum Championship manager. Í stað þess að ræða hinstu rök tilverunnar eða þjóðararf og þjóðarvitund þá er helsta umræðuefnið að eitthvað léttmelt og froðufengið Eurovision-lag hafi lekið á netið og hvað Sylvía Nótt sé rosalega sniðugt fyrirbæri (verst að hún skuli ekki vera þýdd á íslensku). Og þeir sem búa til góða tónlist eru lítils metnir meðan fallegar stelpur sem "mæma" og dilla sér í takt eru efst á vinsældalistunum.
Og í stað þess að standa vörð um fornsagnaarf þann sem okkur Íslendingum var gefinn og hefur verið sá brunnur sem kynslóðir hafa bergt á gegnum aldirnar, þennan sama og Árni Magnússon safnaði með mikilli fyrirhöfn og okkur tókst með herkjum að væla aftur út úr danskinum, þá er glápt á ameríska sápu og enska sakamálaþætti. "Missið ekki af næsta þætti af Will og Grace. Við sjáum Will reyna pípulagningarhæfileika sína þegar gamalt rör gefur sig hjá hommanum á efri hæðinni. Á meðan veltir Grace því fyrir sér hvort hún eigi frekar að fara í brasilískt vax eða láta taka úr sér hálskirtlana." Vá, rosamerkilegt! Slær Njáls-sögu, Grettlu og Eglu algerlega út. Að ekki sé talað um Sturlungu. Og allir þessir ensku sakamálaþættir. Til hvers? Allir sem hafa lesið Agöthu Cristie vita að það er alltaf þjónustufólkið sem er morðinginn. "Butlerinn gerði það" eða "Hestasveininn gerði það" eru standard setningar í þessum "bókmenntum".
Já við lifum í plastpokaveröld, plastpokans syngjum við lag. Úr plasti er öll okkar veröld, plastið við notum í dag.
Gleðilega gerviveröld Íslendingar!
Vá! Glæsilegt Voff!
Góð áminning um að fara að nota heilasellurnar áður en þær hverfa í sora gerfiveraldar.
Heilasellurnar?? Klórar sér í höfðinu Klukkan hvað er sá þáttur?
Hann er sýndur allan sólarhringinn. Bara stilla inn á rétta rásina... Veltir vöngum.