Rétt!
Ljóðið heitir:
hannes hólmsteinn hafstein
Höfundur er:
Bölverkur
Skabbi á leik.
Rétt!
Ljóðið heitir:
hannes hólmsteinn hafstein
Höfundur er:
Bölverkur
Skabbi á leik.
Hvernig veistu og hvar sástu þetta ljóð? Ég var nú bara að giska...
Þetta er held ég eftir snillinginn Jón Ingvar Jónsson, veit ekkkkkkkkki hvað ljóðið heitir. En þekkið þið e.t.v.:
En guð býr í glötuninni amma
æ geymdu handa mér meyjarhaftið amma
Það er rétt hjá Isak Dinesen að einhver raunheimabjálfi Jón Ingvar Jónsson orti kvæðið sem heitir hannes hólmsteinn hafstein.
En, Spurningu Isaks Dinesens get ég bara svarað svona: Megas. Er það rétt?
Jón þessi er nú alveg ágætur (finnst mér).
En júmm, Megas er réttur minn kæri.
Koddu nú með eitthvað spennandi.
Nú kemur ein erfið, en vísan er bara svo góð að ég verð að leggja þessa gátu (ekki þraut) fyrir ykkur:
Finnst mér oft er þrautir þjá,
þulið mjúkt í eyra:
- Þetta er eins og ekkert hjá
öðru stærra og meira.
Ekki veit ég það - en ég veit að ég gæti ekki ort:
finnst þér ekki esjan vera sjúkleg
og akrafjallið geðbilað að sjá?
Nú kemur ein erfið, en vísan er bara svo góð að ég verð að leggja þessa gátu (ekki þraut) fyrir ykkur:
Finnst mér oft er þrautir þjá,
þulið mjúkt í eyra:
- Þetta er eins og ekkert hjá
öðru stærra og meira.
er þetta nokkuð Látra Björg?
Nei þetta er yngra, eftir Vestfirðing.
Ooooog hvað svo?
Ooooooooooog hvað svo?
Nú kemur ein erfið, en vísan er bara svo góð að ég verð að leggja þessa gátu (ekki þraut) fyrir ykkur:
Finnst mér oft er þrautir þjá,
þulið mjúkt í eyra:
- Þetta er eins og ekkert hjá
öðru stærra og meira.
Gisk: Steinn Steinarr?
Er hægt að fá smá vísbendingu?
Ég hirði nú bara réttinn af Bölverki:
...
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
...
Finnst mér oft er þrautir þjá,
þulið mjúkt í eyra:
- Þetta er eins og ekkert hjá
öðru stærra og meira.
Hjálmar? ... frá Bólu? Þetta er allavega mikill heimspekingur.
Ég hirði nú bara réttinn af Bölverki:
...
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
...
á ekki að svara þessu.
ég giska á Znatann
Neisko, er hérna þráður þar sem spurt er um raunheimaskáld?
Þetta síðasta er úr kvæði eftir eee... Stein Steinarr? Eða Tómas? Man ekki, ort líklega í seinni heimstyrjjöldinni.
Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
Þetta er úr Slysaskot í Palestínu eftir Kristján Einarsson frá Djúpalæk
Og þar sem ég veit að þetta er rétt ætla ég að koma með eina létta. Hver orti og hvar birtist kvæðið fyrst
og það var allt út af einni jurt,
sem óx í skjóli og var rifin burt. .