Já, á maður að kynna sig. Það er reyndar sjálfsögð kurteisi, en ég þorði varla eftir að hafa lesið Skottu-þráðinn. Skildi ekki alveg umræðuna.
Ég er fædd upp í frjósamri hlíð
og fjöllin mín vaka' yfir mér,
þar sem vaggar mér vorgolan blíð
og veturinn mjúkhentur er.
Þar er sólin mín sægræn og heit
og sællegt og heiðarlegt fólk,
það er blessun að búa í sveit
og börnunum hollt eins og mjólk.
P.S. Ég valdi mér nafn úr Njáls sögu.
Mitt nafn birtist mér í draumi. Velkomin.
Já, sæl vertu. Það er ekki skrýtið að þú hafir ekki skilið umræðuna á Skottuþráðnum, enda erum við öll sömul klikk. Eftir eigi langan tíma hér munt þú hins vegar sjálf verða klikk, og í þeirri andrá mun þér hætta að þykja nokkrar umræður hér óeðlilegar.
Vertu allra manna velkomnust.. Komdu á Kveðist á!
Mmmblessuð blessuð og velmokin Gildihunnur.
Fékk ég nokkuð svo hræðilegar móttökur? Það þótti mér ekki. En velkomin Hildigunnur. Við eigum sama rafmælisdag Ljómar upp og skottast
Vertu blessuð og sæl, þú virðist ekki vera svo slæm.
Margsæl og blessuð! hristir höndina á Hildigunni ákaft
Hæ Hildigunnur
Verður vandræðalegur á svipinn en hverfur síðan til annarra starfa
Ævinlega velkomin Hildigunnur. Þú virðist vera vönduð persóna.
Ég vil líka benda á að allir á Gestapó koma fram undir eigin nafni og líta nákvæmlega eins út og á einkennismyndum. Það er alger óþarfi að fela sig bak við skáldsögunöfn.
Velkomin Hildigunnur, ég væri ekkert Dularfullur ef ég gæfi upp mitt rétta nafn.
Takk fyrir,þið eruð svo almennileg. Ég var nú ekki svo viss um það þegar ég skrifaði kynninguna. Ég leit á Vísur dagsins. Margar flottar,en stundum dáldið dónó. Hlakka til framhaldsins hér.