Ég heiti sem sagt Hrani.
Vinnufélagi minn sagði að hér væri hægt að iðka tómstundir allskonar.
Sé samt ekki hvort það muni gera mér líkhamlega gott.
Ég var að skrá mig inn í gær og var núna skipað að kynna mig hér. Það var hvergi tekið fram að ég ætti að gera það.
Ég ætlaði að send inn mynd af mér en það er kanski ekki hægt fyrr en eftir 50 innlegg. Svo það er langt í það enn. Eða á að senda myndina á eitthvert netfang?
Á maður sjálfur að vinna myndina eða er séð um það fyrir mann?
Gleðileg Jól!
Koddu blessaður Nær í myndavélina og smellir nokkrum af framan í andlitið á Hrana og hleypur því næst með myndirnar í framköllun Ég lofa engu um að þetta verði komið fyrir jól.
Myndir:
* Myndasafn er uppfært endrum og sinnum.
* Ef engin mynd í safni er þér að skapi skaltu snúa þér til ritstjórnar.
* Örar myndbreytingar eru ekki vel liðnar.
Þetta ásamt öðru gagnlegu finnur þú í, Niðurskipan, sem þú ættir að sjá hægrameginn.
* Gestapó
* Athvarf yðar
* Ritstörf yðar
* Niðurskipan
* Póststöð
* Félagsrit
* Heimavarnalið
* ÚTFÖR
Blessaður Hrani, þú virðist vera alveg hreint ágætur svo ekki sé meira sagt til þess að byrja með.
Mig minnir að það sé eftir 10 innlegg sem manni leyfist að senda inn mynd. En það er líklega aukaatriði nú sem komið er. Vertu velkominn og láttu fara vel um þig. Mér líst vel á þig - reyndu bara að vera ekki of hranalegur.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Gastu ekki sleppt þessu Hái þarna fremst í nafninu? Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég heiti sem sagt Hrani.
Vinnufélagi minn sagði að hér væri hægt að iðka tómstundir allskonar.
Sé samt ekki hvort það muni gera mér líkhamlega gott.
[/b]
Mér er nú nokk sama um "H"-áið sem hann karfteinn Skítabrók vitnar í. Hins vegar er mér öllu verra við h-áið í "líkhamlega" þarna að ofan. Lærðu að rita rétt, góði, og þér mun vel vegna.
Svo er ekki verra að kunna að synda auk undirstöðuatriða í íslenzkri glímu.
Líkhamur er samt gott orð. Ætli kyn- og/eða klæðskiptingum finnist þeir ekki vera í hálfgerðu m líkham?
Jæja, þú ert loksins búinn að kynna þig, allt í lagi þá.
Má hann ekki bara heita "Hrani,,
Jæja Hrani hver eru þín helstu áhugamál?