Ef þið þurfið hjálp svona snemma er þessi leikur ekki fyrir ykkur...
Jújú, bara til að koma sér af stað. Ég hélt fyrst að aðferðin til að komast í borð 3 hlyti að vera svindl.
Komst í gegnum 3 stig. Þessi leikur er fyrir áráttu og þráhyggju sjúklinga. Eða þá sem hafa gaman að því að púsla 10.000 púslum. Ég hef ekki taugar í svona leik (verða að geta svindlað og það strax).
Ég gæti nú alveg hugsað mér 10.000 stykkja púsl! Ljómar upp en myrkvast fljótlega við tilhugsunina um það hvar maður gæti nálgast nógu stórt borðpláss
Ég gafst upp á borði 22. Reyndi aftur og gafst aftur upp á 22.
Nenni þessu ekki lengur!