— GESTAPÓ —
Næstnæstbesti leikurinn: Hvað ertu að gera núna?
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, 4 ... 18, 19, 20  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 29/12/05 16:21

Ég sit í mestu makindum við tölvuna en gjói líka augunum út um gluggann en þar eru tugir ef ekki hundruð snjótittlinga að gæða sér á fuglafóðri, sem ég gauka að þeim. Gaman að fylgjast með þessum greyjum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 29/12/05 22:17

Velta því fyrir mér hvort ég eigi að drekka meira kaffi eða fá mér bjór. Einhverjar hugmyndir?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 29/12/05 22:20

Bjórinn er betri á þessum tíma.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 29/12/05 22:41

Er að spá í að sleppa því. Kannski ég fari bara heim. Hljómsveitin er leiðinleg.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 29/12/05 23:14

Fæ mér þá bara bjór einn og yfirgefinn.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 29/12/05 23:27

Nei nei. Ég er að fá mér bjór líka... bara heima hjá mér ‹Ljómar upp og skálar við Offari›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Stelpið 31/12/05 16:17

Ég er að borða Toblerone-ostaköku og lesa Baggalút.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 31/12/05 16:27

Ég er að hátta mig og ætla að fá mér smá „bændablund“ fyrir kvöldið.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 31/12/05 19:54

Nornin mælti:

Ég er að hátta mig og ætla að fá mér smá „bændablund“ fyrir kvöldið.

‹Veltir fyrir sér hvort Skari bíði undir sæng Nornarinnar›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 1/1/06 09:04

Nú er ég að leggja inn mitt síðasta innlegg hér á Baggalút.

Kannski ekki það síðasta. En ég á ekki von á öðru en það verði langt þangað til að ég hef tækifæri til að kíkja á ykkur aftur.

Málið er það að ég er að leggja upp í ferðalag sem getur tekið langan tíma (getur líka tekið stuttan tíma) og óvíst að maður hafi tækifæri til að komast í tölvu á meðan.

Hafið það gott og eigið gleðileg ár.

P.S. Svo er ég að hlusta á „Klukkur landsins“ á Rás 1 núna. Magnús Bjarnfreðsson les.

Ísland úr NATO og herinn burt!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 1/1/06 14:47

Vertu sæll og blessaður Hildisþorsti minn. Megi för þín ganga greiðlega svo þú getir heiðrað okkur með nærveru þinni á ný.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 1/1/06 15:21

Hildisþorsti mælti:

Nú er ég að leggja inn mitt síðasta innlegg hér á Baggalút.

Kannski ekki það síðasta. En ég á ekki von á öðru en það verði langt þangað til að ég hef tækifæri til að kíkja á ykkur aftur.

Málið er það að ég er að leggja upp í ferðalag sem getur tekið langan tíma (getur líka tekið stuttan tíma) og óvíst að maður hafi tækifæri til að komast í tölvu á meðan.

Hafið það gott og eigið gleðileg ár.

P.S. Svo er ég að hlusta á „Klukkur landsins“ á Rás 1 núna. Magnús Bjarnfreðsson les.

Hvert í dauðanum þykist þú vera að fara? Við höfum ekki gefið neitt leyfi til þess. Annars þá er ég búinn að vera að húðskamma dætur mínar.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 2/1/06 06:16

Ég var að koma heim.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 2/1/06 10:19

Ég er að borða morgunmat.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 2/1/06 11:51

Ég er að ákveða hvort ég ætti að fara ein niður í bæ eða taka einhvern með.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 4/1/06 21:35

Ég er að láta þreytuna líða úr fótunum eftir mikið stapp. Og ég er líka að láta mig hlakka til að komast heim.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skari 6/1/06 15:42

Aðeins að lagfæra settið, koma því betur fyrir.

۞DREKABANINN۞ Háttvirtur yfirlífvörður hins háæruverðuga konungs
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 9/1/06 16:28

Drekka Kristal, hlusta á grísina háma sig hey af miklum móð, og ákveða hvort ég ætti ekki bara að fara niður í kjallara.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
        1, 2, 3, 4 ... 18, 19, 20  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: