Ég sit í mestu makindum við tölvuna en gjói líka augunum út um gluggann en þar eru tugir ef ekki hundruð snjótittlinga að gæða sér á fuglafóðri, sem ég gauka að þeim. Gaman að fylgjast með þessum greyjum.
Velta því fyrir mér hvort ég eigi að drekka meira kaffi eða fá mér bjór. Einhverjar hugmyndir?
Er að spá í að sleppa því. Kannski ég fari bara heim. Hljómsveitin er leiðinleg.
Nei nei. Ég er að fá mér bjór líka... bara heima hjá mér Ljómar upp og skálar við Offari
Ég er að hátta mig og ætla að fá mér smá bændablund fyrir kvöldið.
Ég er að hátta mig og ætla að fá mér smá bændablund fyrir kvöldið.
Veltir fyrir sér hvort Skari bíði undir sæng Nornarinnar
Nú er ég að leggja inn mitt síðasta innlegg hér á Baggalút.
Kannski ekki það síðasta. En ég á ekki von á öðru en það verði langt þangað til að ég hef tækifæri til að kíkja á ykkur aftur.
Málið er það að ég er að leggja upp í ferðalag sem getur tekið langan tíma (getur líka tekið stuttan tíma) og óvíst að maður hafi tækifæri til að komast í tölvu á meðan.
Hafið það gott og eigið gleðileg ár.
P.S. Svo er ég að hlusta á Klukkur landsins á Rás 1 núna. Magnús Bjarnfreðsson les.
Vertu sæll og blessaður Hildisþorsti minn. Megi för þín ganga greiðlega svo þú getir heiðrað okkur með nærveru þinni á ný.
Nú er ég að leggja inn mitt síðasta innlegg hér á Baggalút.
Kannski ekki það síðasta. En ég á ekki von á öðru en það verði langt þangað til að ég hef tækifæri til að kíkja á ykkur aftur.
Málið er það að ég er að leggja upp í ferðalag sem getur tekið langan tíma (getur líka tekið stuttan tíma) og óvíst að maður hafi tækifæri til að komast í tölvu á meðan.
Hafið það gott og eigið gleðileg ár.
P.S. Svo er ég að hlusta á Klukkur landsins á Rás 1 núna. Magnús Bjarnfreðsson les.
Hvert í dauðanum þykist þú vera að fara? Við höfum ekki gefið neitt leyfi til þess. Annars þá er ég búinn að vera að húðskamma dætur mínar.
Ég er að ákveða hvort ég ætti að fara ein niður í bæ eða taka einhvern með.
Ég er að láta þreytuna líða úr fótunum eftir mikið stapp. Og ég er líka að láta mig hlakka til að komast heim.
Aðeins að lagfæra settið, koma því betur fyrir.
Drekka Kristal, hlusta á grísina háma sig hey af miklum móð, og ákveða hvort ég ætti ekki bara að fara niður í kjallara.