Ég var að vakna um tólf leitið eftir að hafa kennt Norninni alvöru ''lying mambo'' kvöldið áður. Fór svo og gekk frá hlutum sem þurfti að ganga frá til klukkan þrjú og er núna hér.
Veistu hvað ég er þreytt? Geyspar
Nei ég hef ekki hugmynd um það, enda svaf ég víst fjórum tímum lengur.
Heitir þessi helvítis þráður hvað voruð þið að gera bara til að við hin getum dáist að framtaksemi Nornarinnar og Skara . Annars er að sofa sama og gera ekki neitt!.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Verið þið nú rólegir, það þarf ekki að æsa sig svona.
PS. Ég var ekki að gera neitt nema vera á Gestapó. Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Grípur fyrir munn sér og flissar í gegnum fingurnar
Skari er allavega búinn að tilnefna Nornina sem konu ársins á öðrum þræði.
Það átti að sjálfsögðu að vera kona ársins til þess að forðast allan misskilning. Enda heitir þráðurinn Maður/ Kona ársins.
Vjer vorum í sturtu.
Ég var að ljúka við síðustu kvöldmáltíð ársins, sem var hamborgarhryggur með tilbehör.
Ég var bara að éta ofnbakaðargæsabringur, skúra og drekka rauðvín.
Var að læðast inn. Æðislegt kvöld.
Ég var að koma heim Ljómar upp Eða þú'st... þannig.
Sama hér, vaknaði um 11. leitið á gólfinu í einhverri íbúð sem ég kannast ekkert við. Læddist þaðan út og fór heim.
Ég var að horfa á Singing in the Rain á TCM. Sígild mynd sem ætti að vera notuð grimmt í þunglyndismeðferðum.
Það er eins og vitur kona sagði: Heimurinn er betri í Technicolor.