Mig langar að vekja athygli allra á því að köntríhljómsveit Baggalúts er húshljómsveit í áramótaþætti Rásar 2, sem er á dagskrá núna og stendur til klukkan 16:00 í dag.
Þar leikur hljómsveitin í beinni útsendingu milli talmálsatriða.
Því miður næ ég ekki samband við þá stöð..Brestur í óstöðvandi grát
Afsakið fáfræðina... en á hvaða bylgjulengd er Rás 2 í Reykjavík?
Jújú... fann Rás 2 á 91,5 Ljómar upp
Jújú... fann Rás 2 á 91,5 Ljómar upp
Æ, þetta unga fólk, sem hlustar bara á FM957, KissFM og aðrar síbyljustöðvar, sem ég kann ekki að nefna.
Aðalsendir fyrir Rás 2 á höfuðborgarsvæðinu er á 90,1 MHz (Vatnsendi) og svo er annar á Skálafelli og hann sendir á 99,9 MHz. Og svo er auðvitað bein útsending á netinu eins og Albin bendir á.
Hristir höfuðið hneykslaður
HEY! Ég næ Rás 2 bara víst á 91,5! Og svo er þetta í minninu á útvarpinu í bílnum og heima. Þarf ekki að muna þetta Setur í brýrnar og krossleggur arma á brjóstum, fúl við Herbjörn
HEY! Ég næ Rás 2 bara víst á 91,5! Og svo er þetta í minninu á útvarpinu í bílnum og heima. Þarf ekki að muna þetta Setur í brýrnar og krossleggur arma á brjóstum, fúl við Herbjörn
Svona, svona, það er óþarfi að fara í fýlu. Mig grunaði ekki að þú værir með Rás 2 í minni en ég átti líka að vita að þú værir að vinna og kannski er ekki hlustað á rásina þar. Sér eftir að hafa gert lítið úr tíðniþekkingu unga fólksins
Blíðkast aðeins
Allt í lagi... þér er fyrirgefið. En bara vegna þess að það ert þú.
Skoppar í burtu og hlusta á Rás 2