Til hamingju með rafmælið Afturhaldskommatittur! syngur internassjónalann í staðinn fyrir rafmælissönginn, gefur Afturhaldskommatitti eintak af 5 ára áætlun Sovétstjórnar frá 1932 í rafmælisgjöf, knúsar hann svolítið og undirbýr byltingu
Vöknar um augun. Þerrar þau með stórum, rauðum snýtuklúti
Þakka ykkur kærlega fyrir hlýhuginn, félagar. Mér finnst ótrúlegt að ég hafi verið hér svona lengi, sérstaklega í ljósi þess hversu latur ég hef verið að tjá mig á þessum ágæta vettvangi. Kannski að ég muni bæta úr því - ég er ekki vanur að strengja áramótaheit, en ef svo ólíklega vill til að ég muni gera það að þessu sinni, þá verður hluti þess án efa eiður þess efnis að láta meira að mér kveða á Gestapó.
Sankar að sér gjöfunum. Útdeilir vodkanum bláleita til viðstaddra, setur rússnenska hermarsa á grammófóninn og dansar kósakkadans milli þess sem hann læsir fólk í bjarnarfaðmlög
Ég vona að það sé ekki of seint en ég óska þér líka til hamingju með rafmælið. Gefur afturhaldskommatittinum risaplaggat með mynd af Stalín
Nei - það er alls ekki of seint, enda ekki enn komið miðnætti. Plagatið þigg ég með þökkum.
Hengir plakatið upp á vegg sem þakinn er álíka veggspjöldum af sama manni og fleirum honum andlega skyldum
Gvendur Skrítni fær hugheilar Rafmælis og jólakveðjur frá mér...
Skarpmon Skrumfjörð.
Gvendur skrýtni fær hinar bestu kveðjur. Skrýtið að hann hann hafi ekki enn látið heyra í sér á rafmælisdaginn.
Mjákvikindi, Vímus og Sundlaugur fá síðbúnar rafmæliskveður frá mér.
Húrra húrra húrra fyrir ykkur!
Kemur inn móður og másandi: Ég, púff..... ég sendi síðbúnar rafmæliskveðjur til Afturhaldskommatitts og Gvends skrítna. Svo óska ég Litlu Norn og Bíðu innilega til hamingju með rafmælið í dag.
Gefur Afturhaldskommatitti kassa af vodka og geisladisk með tónlist eftir Tsjakovskí. Gefur Gvendi skrítna ný gleraugu. Gefur Litlu Norn klapp á kollinn og þýzk-íslenzka orðabók. Gefur Blíðu koss og dekurdag í Baðhúsinu
Það er naumast að þú ert gjafmildur í dag Sundi.
Ég vil óska litlunorn til hamingju með rafmælið.
Gefur litlunorn ekkert
Sundlaugur Vatne, síðbúnar þér
sendi ég kveðjurnar bestar
áfram ég vona að eigir þú hér
ánægjustundir sem flestar.
Ljómar upp og fær ryk í augað
Þakka þér fyrir Vímus minn.
...jæja já...
Það hefur verið útkljáð. Enter er hinn raunverulegi Jesús, og hann á tvíburabróður.
Ég vil óska hæstvirtum og æruverðugum herrum Enter og Herbert til hamingju með rafmælið.
Megi þeir lengi lifa.
Húrra! Húrra! Húrra! Húrra!
Megi Enter og Herbert eiga jólalegt rafmæli . Tek undir húrrahróp Hakuchis. Stekkur hæð sínaxT