Ó!? Ert þú einn af þeim sem horfðir á myndina aftur og aftur af því þú hélst að kannski myndi skipstjórinn læra af mistökunum og sneiða hjá helvítis jakanum?
Ég er staddur í Danaveldi og er að horfa á hinn fræga 14-2 landsleik Íslendinga og Dana í fótbolta á myndbandi. Húsráðendur hér hafa horft á leikinnn af og til í 28 ár og sögðu mér að staðan hefði breyst í 10-4 með því að horfa nógu oft. Með þessu áframhaldi vinnum við Dani í þessum leik eftir 35 ár.
Hverjir myndiu vinna í slag Palli og Toggi vs. Knold og Tot.
Eða þá Blástakkur vs. McCoy höfuðsmaður.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Hættu að horfa!
Ég segi þvert á móti: Haltu endilega áfram og skemmtu þér vel í Danaveldi.
Litlir grænir kallar...furðuleg andlit...óskiljanlegt blaður...skrýtin lykt...
Hélt ég hefði verið brottnuminn og sá svo að ég hafði villst inn á fund hjá Framsókn.
Þú ert að tala um fólkið á færeyjum. Reyndar er þetta með græna litinn nokkuð furðulegt, en það er auðvitað hugsanlegt að þú hafir verið með græn sólgleraugu.
Nei, þetta var ekki í Færeyjum. Siv var þarna, Halldór líka, Guðni, Valgerður og öll hin heimskulegu smettin.
Gat nú verið! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Á nú að fara blanda okkar heimskulegu ríkisstjórn og alþingis mönnum á þessu útnára skeri í hámeningarlegar umræður á þessum síðum?
Að mér heilum og lifandi! Blótar herfilega og rífur hár sitt og strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér heldus síðan áfram að æfa sig í Flight simulator að hitta húsið á Austurvelli
Tja, ég er að fara á stuttmyndahátíðina Ljósið.
Já, góðar minningar. Sérstaklega minnist ég myndarinnar "Þýzku" sem var sýnd þegar maður stundaði nám við Verzlunarskólann sinn.
Tja, ég er að fara á stuttmyndahátíðina Ljósið.
Já, góðar minningar. Sérstaklega minnist ég myndarinnar "Þýzku" sem var sýnd þegar maður stundaði nám við Verzlunarskólann sinn.
Heyr á endemi!! Í Verzlunarskólanum hefur aldrei nokkurn tíma verið lögð ástund á nám, þar hafa menn þó lagt fyrir sig himpigimpishátt og froðusnakk. Þær íþróttir eru vart í frásögur færandi. Er þá gæfulegra og almenning hollara að leggja stund á fáfræði í skóla lífsins.