Sökk ég dýpra sukkið í
Sollinn þótti góður
Dónin sönglar dirrindí
Drulluspóli í óður
sökk ég dýpra sukkið í
sollinn þótti góður
drakk svo ætíð upp frá því
enda drykkjumóður
lífsins sæta svalalind
sífellt kætir okkur
Lífsins sæta svalalind
sífellt kætir okkur.
Ég er hræ og hryggðarmynd,
hundrað tómar bokkur.
Allan daginn út og inn
ávallt fullur er ég.
Allan daginn út og inn
Ávallt fullur er ég
Heim til mín frá hvar ég finn
hillur dauðar ber ég.
Að utan kem eg alltaf hreint
með afar fagrar flöskur.
Ég vil benda mönnum á að þessi fyrripartur uppfyllir langflestar reglur um ferskeytlur, stuðlar eru í réttum kveðum, allt sérhljóðar. Ef til vill vefjast forliðirnir fyrir mönnum, en þeir eru orðin 'að' og 'með' og eru áherslulausir. Ef Bagglýtingar geta svo ekki fundið rímorð við 'hreint' og 'flöskur' er það þeirra vandamál.
Að utan kem eg alltaf hreint
með afar fagrar flöskur
Poffi minn!
Næst skaltu hella innihaldinu í klósettið,
þessi hnoðmör hér fyri ofan getur ekki kallast fyrripartur.
Andropov við alkohól
aldrei getur rímað
Andropov við alkohól
aldrei getur rímað
Ennþá síður fatlafól
fjöll um getur stímað.
Sóðakjaftur sagður er
sé er þetta skrifar.
Andropov með alkohól
ekki skyldi fara.
Þambi frekar Sana-sól,
sorann mun þá spara.
Alltaf of seinn........og Mjási búinn að breyta fyrripartinum, ja hérna.
Sóðakjaftur sagður er
sé er þetta skrifar.
Þykir líka ósköp þver,
þrasar mjög og klifar.
Að yrkja fullur erfitt er,
andleysi þig hrjáir.
Að yrkja fullur erfitt er,
andleysi þig hrjáir.
Flöskuandinn fleytir mér,
fljóta andans skjáir.
Allsgáður mun andinn klénn
eins og sést á þessu.
Allsgáður mun andinn klénn
eins og sést á þessu.
Hvorugur, enginn, hálfur, nénn.
Hendist út til messu.
Svo er hér smá um ævintýri MÞH þingm. frjálslynda flokksins í Danaveldi. Ekkert skil ég í hvað fólk er að æsa sig yfir því að hann hafi misst af ræðu. Ræðan var hvort sem er á dönsku. Bara eitthvað: "Onkel Joakim spiser pölser med flödeskum." So what
Ekki flengja Magnús minn.
Þótt mikið hafi hann drukkið.
Ekki flengja Magnús minn.
Þótt mikið hafi hann drukkið.
Elsku litli auminginn
illa þolir sukkið.
Danaveldi, dýrð á jörð
drukknir þar um reika.
[æ ég held ég gangi frá þessum enda at tharna]:
Að utan kem eg alltaf hreint
með afar fagrar flöskur.
Um tollin jafnan læðist leynt
þá lítrar fylla töskur
Danaveldi, dýrð á jörð
drukknir þar um reika.
úr Ákavítis illri gjörð
engir fund á meika
Strikið margir stefna á
stökkva jafnvel yfir
Strikið margir stefna á
stökkva jafnvel yfir
Heimsmetin hrópa þá
„Hættið að nota steralyfin“.
Fermingar og fólskustand
Foreldrar á yði.
Fermingar og fólskustand
Foreldrar á yði
Góður guð hann er sko grand
gaf okkur gefandi siði
Ég er fermdur ég er fínn
fullorðnaður maður
Fuglinn segir bíbíbí
bíbí segir Leoncie
Frægðin hennar fyrir bí
fór í kvöld á PoppTV.
Eftirlætis frasi flestra:
Í fréttum er þetta helzt.
Hér kemur innlegg mitt númer 500
Eftirlætis frasi flestra:
Í fréttum er þetta helzt.
Rysjótt er nú veður vestra,
varla það nýjung telst.
Í Madrid er nú mikil sorg,
margur harmi sleginn.
Í Madrid er nú mikil sorg,
margur harmi sleginn.
Milljónir í miðri borg
mjakast áfram veginn.
Á efri hæð búa Friedland og frú
en fröken Siemens niðri.
Á efri hæð búa Friedland og frú
en fröken Siemens niðri.
og aldurhnigin geðstirð hjú
híma við endann syðri
Áfram hverfur fönnin hvít
helvíti það finnst mér
Áfram hverfur fönnin hvít
helvíti það finnst mér
Bráðum eins og að búa á Krít
Blindfullur hjá sjálfum sér.
Ungur var ég æðrulaus
ekkert fjör var það nú