Fróman Enter oft að ber
einnig Núma maður sér
líka Myglar laumast hér
lengi Kaktuz horfinn er
tæpast Spesi tala fer
trauðla Fannar lítum vér
En helgar kindur hampi ykkur öllum blessuðum öðlingunum...
Ljómar upp eins og nýtengt neonljós
fimbulvetur hvar fúnar lund
frekar svört þá nóttin
napurt blóðið næðir sprund
nagar ritgleði óttinn
byrtast baggar evt.
því bráðum koma jólin
þó að veður verði ill
varla bregðast fólin
það er góður og gildur díll
gagnast ætíð tólin
mikið gaman og myndug rím
varla verða betri
mikið gaman og myndug rím
varla verða betri
bót er að fá bragarlím
bætir vísutetrið