VARÚÐ!! Það er ekki ráðlegt að horfa á þetta einsamall. Einhver þarf að geta hringt á sjúkrabíl!
http://www.mafia.is/video/armi_ja_danny.mpeg
(37 megabæta skjal, best að sækja skjalið og skoða í Windows Media Player með full screen stillingu)
Vá, karlinn er með alveg eins hár og He-Man.
Vá, dansifólkið.
Vá, buxurnar.
Vá, tónlistin.
Þegar dansararnir komu í lest fyrir framan myndavélina þá virkilega lagðist ég í gólfið og orgaði af hlátri og fékk skelfilegan magakrampa!
Guð minn almáttugur, ég var búin að sjá þetta!
Þetta myndband er alveg óumdeilanlega fyndið. Ég þarf endilega að vista það á tölvuna hjá mér til að hafa við höndina á öllum gráum stundum lífsins, þetta virkar miklu betur en öll pepp heimsins, allir kaffibollar heimsins og allar súkkulaðikökur heimsins.
Niðurstaða: Það er ekki hægt að finna meiri gleði innra með sér en einmitt þegar maður horfir á þetta myndband! Ljómar upp
Að lokum vil ég bæta einu við það sem Stelpið sagði:
Vá, textinn!
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta er ótrúlegt. Síðan hvenær er þetta eiginlega - hvað er þetta eiginlega ? Lítur út fyrir að vera 20 ára gamalt. Ótrúlega hallærislegt og textinn fær hjer með þann dóm að vera sá 'klisjukenndasti' sem vjer höfum á ævi vorri heyrt.
Guhvöð! Ég á ekki til orð!
Þegar dansararnir komu í lest fyrir framan myndavélina þá virkilega lagðist ég í gólfið og orgaði af hlátri og fékk skelfilegan magakrampa!
Nákvæmlega það sem ég hefði gert ef ég væri ekki í tölvustofunni í skólanum innan um ókunnuga unglinga!
Þvílík snilld! Þvílík gargandi snilld!
Ég get svo svarið það!
Gerði mig að fífli í matsal HA núna rétt í þessu. Hló, hátt... og oft.
Takk elsku Ívar, þér tókst að bæta daginn um 105% Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Og þeir stálu meira að segja smá Stuðmannahoppi Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Er þetta ekki bara málið? tekur dansspor [01:50 - 01:57]
Já var þetta svona í gamla daga? Flissar eins og súkkulaði með karamellu og hnetum
Jájá, er þetta ekki Raggi Bjarna sem syngur?
Bíddu, eru þið að gera grín að frænda mínum eða?
Finnst ykkur þetta fyndið?
.
.
.
Hann er bara listamaður! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Fyndið, en ekki hættulega fyndið.
Ég hugsaði alveg um að glotta á meðan þetta rúllaði.
Vona að ég sé ekki OF alvarlegur...
Þetta er svo rangt.
Klórar úr sér augun enn á ný
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ljómar upp
Stekkur hæð sína
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega skemmtilegt