Hvar er Osama Bin Laden? Verðlaun 10.000.000 $
Hvar er Saddam Húsein? Verðlaun 50.000.000 $
Lausn frá síðast
Hvar er Petit? svar: ennþá hjá Chelsea.
Hvar er Elvis? svar: dauður
Osama og Saddam eru báðir á jörðinni, miðað við stærð alheimsins er þetta afar nákvæmt svar þannig að ef þjer ráðið yfir almennilegum njósnagræjum ættuð þjer að geta fundið þá á nokkrum sekúndum. Ef vjer nú ímyndum oss að alheimurinn væri jafnsmár og jörðin þá jafngildir nákvæmni þessarar staðsetningar vorrar hjer um bil milljarðasta hluta úr nanómetra þannig að hún er augljóslega nógu nákvæm fyrir yður og krefjumst vjer því fundarlaunanna.
leiðinlegt að þurfa að ræna þessum annars bráðskemmtilega þræði, en mikið eru nú gaman að sjá loksins alvöru mynd af þér Vladimir
skál !
Breyting þessi var viðeigandi hjer á GESTAPÓ
Sk<HIC!>ál ! Ljómar upp
Til Fuckov
Við ráðum nú þegar yfir svoleiðis tækni en höfum ekki kunnáttu til aðgerða.
Ef eitthvern vantar vinnu við svoleiðis tækni-dótarí þá væri ég tilbúinn til að ..
ráða þann í vinnu sem sagt ha...
Osama vinnur víst sem miðasölustúlka á Smithsonian Air and Space í Washington DC. Matar og kaffitímum ver hann víst í að gera gamlar flugvélar innan safnsins flughæfar af nýju. Hversvegna veit ég ekki.
Ég hélt að hann væri að vinna við að úthluta skreiðarhausum í Nígeríu?
ég vann á dekkjarverstæði með Osama hann var þá óþokki og launaði mér lambið grá, hann setti salt í tevatnið mitt og hann var ekkert góður á affelgunarvélina.
það getur engin sagt mér að Elvis sé dauður, það er bara ekki satt
Elvis er innbrotsþjófur og bæjarróni á Íslandi, og kaldhæðnin er sú að hann er einnig í Elvisklúbbnum.
Nei nei Petit er dauður og Elvis er hjá Chelsea.
Eða er ég að bulla?
Starir þegjandi út í loftið
ég hélt að við værum að tala um hvar osama bin laden og saddam hussein væru?
Mér sýndist ég sjá Osama í myndinni Master and Commander. Það er ansi snjlall felustaður ef rétt er.