Kakó Ljómar upp
Til hamingju með rafmælisdaginn Hexía.
Til hamingju með rafmælilð Elsku hjartans Hexia mín. Viltu skutla mér í vinnuna?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum Hexiu hjer með formlega til hamingju með rafmælið Færir rafmælisbarninu risahátæknikakóverksmiðju í rafmælisgjöf:
Fær sé kakóbolla Til hamingju Hexía. Alltaf jafn gott að þiggja hjá þér kakóbolla. Gefur Hexíu spánýtt kakóbollastell. Tuttugu og þrír kakóbollar ásamt hágæða rjómasprautu og skál fyrir sykurpúða.
Ung að rafárum er nornin goggstóra, kærar afmæliskveðjur frá Órækju óræktarbúinu.
Til hamingju með rafmælið frú Hexía. Megi kakógerð þín blómstra um aldur og ævi.
Hexia á rafmæli! Og hún á daginn alein!
Gefur Hexiu poka með körtuvörtum, snákatungum og kanínulifrum
Innilegar til hamingju með rafmælið, Hexía mín.
Gefur Hexíu dekurdag í Baðhúsinu og frotté-baðslopp
Til hamingju með rafmælið. Gefur Hexíu eitthvað ámóta sniðugt og hann gaf Norninni, ef ekki sniðugra
Æ takk enn og aftur! Horfir með blendnum tilfinningum á kakóverksmiðjuna Hún er rosalega flott... og líka rosalega stór.... Ætli ég geti fengið að hræra eitthvað sjálf? Bara pínu? Kyssir Vlad á kinnina Takk!
Kyssir alla hina líka Takk fyrir mig! Setur allar fínu afmælisgjafirnar í handtöskuna, en passar að kakóverksmiðjan sé örugglega í sér hólfi svo hún brjóti nú ekki kakóbollastellið
Setur pakkann frá Galdra í vasann og veit að þetta er pakki sem má aldreialdreialdrei opnast
Þú getur lesið um það í handbókinni Hermundur.
Til hamingju Hexía.
Gefur Hexíu happapening
Ó, ég skil það núna. Til hamingju Hexia. Þú virðist vera kakómeistarinn hér. Maður ætti kannski að líta við hjá þér og þiggja bolla bráðlega.
Kærar þakkir!
En nú er dagurinn minn liðinn og kominn nýr dagur með ný rafmælisbörn. Ég vil sérstaklega flytja Sæma fróða kveðju í tilefni dagsins. Afhendir Sæma fjaðurpenna úr fönix Til hamingju Sæmi minn!
venni vinur og Sauða-Mangi, til hamingju með rafmælið og alveg sérstakar rafmæliskveðjur til
Sæma okkar Fróða. Hann lifi..!..
Óskar Sæma innilega til hamingju með rafmælið Gefur honum koss á kinn og forláta skrifskinn úr Þorgeirsbola Hann lengi lifi! Húrra, húrra, HÚRRA!
Dillinger er einn af þeim sem vonandi á eftir að eiga hér afturkvæmt. Saknaðarkveðjur.
Ég er nær en þú heldur.... Laumupúkast í burtu