Endilega hlustið á Vegbúann með meistara KK.
Vá hvað er langt síðan ég hef hlustað á Aphex Twin.
Nile - Black Seeds of Vengance. I love the sound of death metal in the evening. Sounds like... victory.
Fréttirnar.
Anal Cunt - Limp Bizkit thinks they're black, but they're just really gay. Æðislegheitin uppmáluð.
Run for your life. Er einhver sem veit upp á hár hvaða hljómsveit þetta er? Eða einhver sem vill giska á það, svona upp á gamanið? (Kannski til nokkur lög með þessu nafni, aldrei að vita, kannast allavega bara við þetta eina.)
Öhh, ertu ekki að tala um Run to the hills með Iron Maiden? Annars er greinilega fullt af lögum sem heita Run for your life, eins og sjá má á www.allmusic.com.
Skrattist þið nú til að hlusta á eitthvað eftir Chopin. Tilvalið svona í morgunsárið er t.d. Impromptu Op. 29, en þið megið velja - ég ætla að hlusta á það.
Hugsa að ég taki þessum ráðleggingum þínum Isak.
Ekki minn tebolli. Þá hlusta ég nú frekar á finnskt polka. Finntroll - Jaktens Tid (acoustic)
Núna er ég að hlusta á lag af nýrri plötu Svölu Björgvins. Þetta er ekki eins slæmt og ég átti von á, en heldur ekkert meistaraverk. Meðalmennskan í fyrirrúmi.
Smá Amon Amarth hefur aldrei drepið neinn.
Öhh, ertu ekki að tala um Run to the hills með Iron Maiden? Annars er greinilega fullt af lögum sem heita Run for your life, eins og sjá má á www.allmusic.com.
Nei, ég er ekki að tala um Run to the hills, ég færi nú ekki að spyrja um hver flytti það. Kemur mér svo sem ekkert á óvart að til séu mörg lög með þessu nafni, en þeir sem flytja lagið sem ég var að hlusta á voru að sjálfsögðu Bítlarnir. Textinn í laginu er mjög frábrugðin því sem maður á að venjast frá þeim, finnst það merkilegt að því leytinu til. Nú, aftur, bara svona upp á gamanið, er einhver sem veit á hvaða plötu þetta lag er, án þess að þurfa að fletta því upp?
Annars er ég nú bara að hlusta á Clocks.
Ég var einmitt eitthvað hissa á þessu Gunnar minn. En - þetta er bítlalag sem ég þekki ekki.
Ekki minn tebolli. Þá hlusta ég nú frekar á finnskt polka. Finntroll - Jaktens Tid (acoustic)
Naunaunau.
Finntroll yeah!
Á einmitt diskinn... Jaktens Tid þ.e.
Geggjað! Finntroll er gæði. Annars hlusta ég núna á Opeth - To Rid The Disease
Vei, ca. 15 klst. í Amon! Þessvegna er ég að hlusta á Alice in Chains...
Smá Norah Jones væri fín hugmynd. Seven Years kannski.