Þráðurinn vísar ekki í vísur eftir Nafna, en síðasta hending vísnanna skal smanstanda af nafni einu saman. Ég orti rétt í þessu tvö sýnidæmi:
Af því heyrði einhvern kvitt
að þú berir sóttir,
samt er gott að gera hitt
Guðlaug Bæringsdóttir.
Brölti ég í bólið mitt
blóðið rýkur af stað,
þá er gott að gera hitt
Guðlaug Marta Hafstað.
varpið ekkert á að bjóða
- er til vansa
tók af dagskrá trompið góða
- Tony Danza
Þegar leið er lund og geð,
lífið raun og bölvað streð
brölti ég í bólið með
Brynju Hildi Kærnested.
Þetta er gott ef þú ert mát,
þurrausinn og ren;
Lilla hampar hýr og kát
Helga Steffensen
Hvað er betra ef þú ert mát,
þurrausinn og ren;
Lilla hampar hýr og kát
Helga Stephensen
Steffensen var það... Hún er ekkert skyld honum Magga litla...
Takk fyrir umvöndunina, hefi breytt öllum rangfærslum í vísunni, ég hef verið eitthvað austan við mig...
Ef að rýtir undir þér
árans djöfuls beljan
tel ég dagljóst að það er
Aðalheiður Seljan.
Laglegur mjög og léttur á brá
Landsins bjartasta von
Albesti maður sem Ísland á
Axel Bæringsson
Í sjónvarpinu áður sá
Í svaka ham
Barminn stóra bifast á
Bryndísi Skram
Til að ná mér notar slím,
nei, nei, það er ekkert flím,
hefur útferð eins og lím
Aðalheiður Guðný Briem.
Ef að hann er eitthvað stífur
eins og pylsa jósk.
Eitt er víst að alltaf blífur:
Ingi ríður Ósk
Nefni ég mig Nafna hér
nefnilega hestur (bestur?)
Máske ekki þykir þér
þægilegur gestur
Verði skapið ofsa illt
alltaf getur hresst mann
svaka gleið og glennt og spillt
Guðrún Marta Vestmann.
Á hagyriðnga mótum er oft gerð grein fyrir stökunum, hér er verið að ræða um fyrrverandi konu þeirra Jacksons og Cage.
Jákvæður var jálkurinn
japlaði gjarnan Nestlé.
Ekki var síðri erfinginn,
Elvis, dóttir, Presley.