Ég er að framkvæma þann merkilega verknað að drekka eplasafa. Það sem gerir þetta mál allt svo undarlegt er sú staðreynd að ég á bjór í ísskápnum. Maður er greinilega eitthvað utan við sig í dag.
-
Kókate. Án gríns. Te gert úr laufum kókaplöntunnar.
Jamm og jæja Jóakim, hvernig er heilsan?
Heilsan er ágæt, en maginn hefur ekki verið svo góður síðan ég yfirgaf Frón. Ég veit ekki hvernig stendur á því. Kannske ég ætti að fara að drekka mjólk og borða mjólkurafurðir.
Svo við snúum okkur aftur að mikilvægum skilaboðum varðandi vökvaneyslu. Þá er ég að dreypa á slöppu rauðvíni við kertjaljós og tölvubláma. Afbragðs fátæklinga- laugardagskvöld í hinum haustfagra bæ, Óðinsvé.
-
Malt! Múhahahaha! Rawr!
Freyðivín - Moscato Santero. Annars er óþarfi að hafa áhyggjur af mér, kókið er ekki langt undan! Ljómar upp
Ég er nú ekki að drekka neitt. En ég væri alveg til í eins og eitt vatnsglas.
Tómatasafa og lýsi...
Þessi "Níja" ásjóna Skabba gefur ekki tilefni til annars en ákavítisdrikkju. Skál!
Í ljósi þess að ég var að klára frekar stóran poka af salthnetum, innbökuðum í svokallaða 'salsa-skel', tel ég nokkuð ljóst að drykkja af einhverju tagi þarf að eiga sér stað sem fyrst. (Enda er ég óttalegur kettlingur þegar kemur að sterkleika matar.)
Opnar svellkaldan og svalandi bjór
Skál félagar !
-
Hmm Limbri. Hljómar áhugavert. Áttu uppskrift? (af matnum helst, uppskrift af bjórnum má sosem alveg fylgja)
Þessar hnetur kallast bara Kims Peanuts SALSA. Fást í flestum verslunum hér í bæ þessa dagana. Ég er því miður ekki með uppskriftina sem slíka.
-
Jááá svoleiðis. Hélt að þetta væri eitthvað annað. flissar
Trópí.
Egils Jólaöl. Ekki alveg jafn gott og ekta blandað-á-staðnum en ég nennti ekki að blanda sjálf.