Ég hef heyrt því fleygt að spilling sé allnokkur innan Morgunblaðsins! Hrökklast aftur á bak og hrasar við Ég ætlaði að birta þar pistling (ég á skamm skilið fyrir hliðarspor) en honum var vísað frá vegna "tilraunar til múgsefjunar" og ég, sem veit varla hvað múgsefjun er, varð heldur hissa við þessi skilaboð, varð ég því að éta hattinn minn og fara heim að grenja. En ég mun hefna mín, eru fleiri með?
Ég skal smakka á hattinum og skæla svolítið en uppreisnir eru ekki mín sterka hlið.
Ja, fyrst svo er, verðurðu náttúrulega að deila þessum ágæta pistlingi með okkur félögunum á Baggalúti.
Til hvers viltu skrifa í jafn ömurlegan bleðil og moggann? Séð og heyrt er málið