Auðvitað getur enginn séð sér fært að hrekkja svona yndisfríða mær einsog blóðugt þarsem hún ráfar um í nýjum húsakynnum.
Ég fékk ágætis tiltal, sem og góðar ábendingar frá mörgu góðu fólki hér, og hef ég lennt í ýmsum ævintýrum síðan þá.
Hér er gott að búa.
Lyftir glasi og skálar fyrir öllum
Skál allir xT
Ég hef að minnsta kosti ekki fundið neinn hér sem mér líkar illa við. Þetta er allt saman ágætis fólk.
Ég held að það sé bara minn dagur í dag. hvæsi segir að ég sé yndisfríð og sonur minn tilkynnti mér að ég væri ekki kelling þó ég sé mamma.[/s]
Þetta er líka þinn dagur. Þú ert vissulega yndisfríð og engin kelling.
Velkominn!
Fæ eg klapp?
Purrar ánægjulega
Voru allir óvenju góðir við mig þegar ég byrjaði að koma hingað eða er ég bara svona fljót að gleyma misþyrmingunum? Erum við kannski sprautuð með einhvurslags gleymskulyfi til að við munum ekki eftir því?
Frelsishetjan hefur lítið sjest hjer undanfarið. Hann er sjerfræðingur í móttöku nýliða, sjer í lagi þó óæskilegra nýliða. Hefði hann tekið á móti yður mynduð þjer örugglega eftir því (nema gleymskulyfi hafi verið beitt).
Velkominn Jörnljótur. Hagaðu þér.
Gefur leyniskyttunum merki
Eykur fjárútlát
Setur öll gjöreyðingarvopn í viðbragðsstöðu