— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 341, 342, 343 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 11/10/05 12:16

Haldir þú til Hondúras
hafðu með þér sólarvörn,
vindlakassa, viskíglas,
verjur, lyf og Axlar-Björn.

Sólin heita suður í
San Maríno brosir.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leir Hnoðdal 11/10/05 12:44

Sólin heita suður í
San Maríno brosir.
Væri til þú vina hlý
hýalínið losir

Glíma gömul íþrótt er
gagnast núna fáum

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lærði-Geöff 11/10/05 15:18

Glíma gömul íþrótt er
gagnast núna fáum
brátt í sögubækur fer
bundin inn með stráum

Svalir menn og sveitungar
svakalega börðust

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 11/10/05 16:56

Svalir menn og sveitungar
svakalega börðust
grasmaðkar og geitungar
gereyðingu vörðust

Bagglýtingar búa hjer
á besta vef í heimi

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 11/10/05 17:44

Bagglýtingar búa hjer
á besta vef í heimi
Dunda bæði og dúlla sjer
djöfull magnað teimi

Í fangið mitt mig fagra mey
fjarska mikið langar

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/10/05 20:40

Í fangið mitt mig fagra mey
fjarska mikið langar
innra með þér ástarfley
þú eflaust brátt það fangar

Mikið er ég máttlaus nú
megna vart ásláttinn

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leir Hnoðdal 11/10/05 21:43

Mikið er ég máttlaus nú
megna vart ásláttinn
Taktu taki þína frú
og teymdana í háttinn

Axlir mínar eru brauð
ekkert bera uppi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 11/10/05 22:48

Súrheysturninn sívali
sýnist mér að halli.
Ráða vitja hjá Vali
að verja greyið falli

þarf að ganga grýtta slóð
um gjábakka til frelsis

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Smali 12/10/05 06:59

Þarf að ganga grýtta slóð
um gjábakka til frelsis?
Ekki held ég þessi þjóð
þekki fjötra helsis.

Flest við erum fórnarlömb
fíknar, græðgi og heimsku

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lærði-Geöff 12/10/05 09:04

Flest við erum fórnarlömb
fíknar, græðgi og heimsku
finnum okkur feigðarvömb
fyllumst vegna gleimsku

Losa niður láðist mér
létt er því að gleyma

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Prins Arutha 12/10/05 09:52

Losa niður láðist mér
létt er því að gleyma.
Lyktin sæta leyfir sér,
létt um vitund streyma.

Næst skal hérna skrifa um,
Skutul þann er glóir.

Prins Arutha af Krondor
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 12/10/05 14:48

Næst skal hérna skrifa um
skutul þann er glóir
hérna þíðir ekkert humm
hér menn eru frjóir

Reyni ég nú rímur við
reglur vil ei brjóta

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 12/10/05 17:22

Reyni ég nú rímur við
reglur vil ei brjóta.
Bægslast um og ber á svið
braghættina ljóta.

Þvottabretti, þæfingur
þetta tvennt ég hata

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 12/10/05 17:44

Þvottabretti og þæfingur
þetta tvent ég hata
brotin er minn baugfingur
á samt von á bata

Kækji hefur kynjótta
keppist við að tala

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 12/10/05 18:17

VILJIÐ ÞIÐ ANDSKOTANST TIL AÐ VANDA YKKUR BÖGUBLESARNIR YKKAR!

Það er önnur hver vísa hér illa stuðluð og/eða með ótækri hrynjandi. Lesið ykkur til apaskammir og drattist til að kveða hér almennilega. Það er ekki eins og þetta sé flókið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 12/10/05 18:21

Losa niður láðist mér
létt er því að gleyma
gert í brækur hef ég hér
hægðir þær nú geyma

apakettir æða villtir
Enters þolrif reyna

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 12/10/05 18:28

Hvað gerði ég af mér?

Apakettir æða villtir
Enters þolrif reyna
Bögu kveða, bráðir, stilltir
braghættinum leyna.

Er þetta nógu gott fyrir þig?

Elsku besti Enter minn
ert'að far'á taugum?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leir Hnoðdal 12/10/05 21:32

Elsku besti Enter minn
ert'að far'á taugum?
Leiðist þér svo lesturinn
lokaðu báðum augum

Ljótar eru sögur systra
setja mann í klessu

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 341, 342, 343 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: