— GESTAPÓ —
Live a little
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 16/9/05 02:12

Hérna þurfum við að standa að baki vorum forsætisráðherra og stuðla að friði í veröldinni. Ég er reyndar ekki viss um að öryggisráð S. Þ. sé rétti vettvangurinn, en það skiptir ekki máli. Virðum viljan fyrir verkið.
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1158653

Ísland úr NATO og herinn burt!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 16/9/05 08:57

Það er ekkert að marka þessa falsmiðla!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 16/9/05 09:10

Alltaf líta menn út eins og nýstignir uppúr flórnum á mikilvægum alþjóðavettfangi. ‹Dæsir mæðulega og lítur í spegilinn. Áttar sig að lokum á að umrææddur er framsóknarmaður enda alltaf til rökrétt skýring við öllu›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 16/9/05 09:21

Já, og þá á maður eftir að hlusta á hann og skammast sín fyrir

a) afburðalélegan framburð
b) það sem hann er að segja
c) það að enginn var að hlusta á hann

‹Brestur í óstöðvandi grát›

Kannski, já ...bara
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 16/9/05 12:07

Þjer getið þá a.m.k. horft á hina björtu hlið málsins: Sje (c) rjett skipta (a) og (b) miklu minna máli en ella.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 16/9/05 13:11

‹Klórar sér í höfðinu›

Jú mikið rétt. Mér líður einhvernvegin miklu betur núna.

‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Kannski, já ...bara
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 16/9/05 14:01

Hva .........þetta er bara flottur klúbbur!!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 2/10/05 22:37

Ég held að það væri sterkur leikur að Öryggisráð Baggalúts yrði stofnað.

Háttvirtir meðlimir þess ágæta ráðs gætu ályktað um hin ýmsu málefni er varða Baggalút. Þetta ráð yrði vitaskuld gjörsamlega gagnslaust en það að bera fallegan titil og geta með sanni sagt vera í Öryggisráði... það er nokkuð flott.

‹Býður sig fram í Öryggisráð Baggalúts - ÖRBAGGAL›

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 11/10/05 07:28

‹Keppir við pabba rass um sæti›

er með minni rass og ætti því að rúmast betur

Baggalútsfyllstur * Íþrótta og kvennamálaráðherra Baggalútíu * Baggalútsfyllst SKÁL* sæmdur í september 2005 heiðursmerki forsetaembættisins fyrir þrotlausa útbreiðslu sannleikans
LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: