— GESTAPÓ —
Enn er kveðist á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 337, 338, 339 ... 453, 454, 455  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leir Hnoðdal 7/10/05 14:41

Velta meiga milljónum
margir aurapúkar
Raka saman skrilljónum
skrattinn á þá kúkar

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hugfreður 7/10/05 15:13

Kúkinn áfram kreist'ann fast
köggul harðann fann
tregi er um taðsins kast
trefjar skortir hann

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lærði-Geöff 7/10/05 15:32

Hann og oft með hægðir fer
harðlífi með meiru
skeit hann loks úr skauti sér
skýrði hana Leiru

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 7/10/05 16:45

Leirur andans labbað get
leirinn til að vinna
Hérna enn sem oftar set
eina, það má kynna

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 7/10/05 17:24

kynnast vil ég konu sem
kann að taka gríni
hlæja þá ég hana lem
- og halda tranti er ég kem

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 7/10/05 17:29

Kemur heim í heiðardal
heilladrengur Teri
Kann hann varla kvennaval
karlinn algjör steri.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 7/10/05 20:20

Sterarnir Fýsex, Stanozol og Winstrol,
Stromba með Príma og Nandrolon
Oxidózóna, Ferboliko, Anadrol
auðvitað fylgir því Oximetalon.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 7/10/05 23:27

Oxi metal onarnir
er það nafn á bandi
sem í sitja rónarnir
Ziggi Marley og Ghandi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 7/10/05 23:35

Ghandi kallinn spakur var
hann var enginn sauður
í visku hann af flestum bar
Samt er hann nú dauður.

[Guð minn almáttugur... gjörsamlega ólöglegt og enginn tekur eftir því... lestu rimur.is og heimskringla.net ... Skabbi]

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 8/10/05 04:19

Dauður einhvern daginn ligg
djöfull má því treysta
nautnalíf með þökkum þigg
það má víða kreista.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 8/10/05 11:49

við látum það nú ekki stoppa okkur

Kreista munum kútana
Kölska hjá í flýti
streymir þar um stútana
stöðugt Ákavíti

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 8/10/05 13:25

Vítisdvöl þín verður góð
vina þinna meðal
Ylurinn frá ansans glóð
örugglega eðal

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/10/05 18:13

Eðalmálmur kóbalt kalt
kæli set í glösin
það mig bætir þúsundfalt
þreytir mig ei ösin

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 8/10/05 20:40

Elexír
Alex býr
Til úr telefaxi
Felix hýr
Helix nýr (ef við gefum okkur að sú mynd sagnarinnar að núa sé yfirhöfuð til)
á fætur vafðar vaxi

GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 8/10/05 22:14

Vaxmeðferð verður góð
vina þinna meðal
Ylurinn frá kerta glóð
örugglega eðal

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 8/10/05 22:17

Dohh...........!!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 8/10/05 22:30

Eðalvínið endalaust
Eigi skal mig saka
Vetur sumar vor og haust
vískílögg með klaka

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/10/05 22:51

Klakaböndin binda mig
best í vískiglasi
Ef að drykkjan þreytir þig
þessu hættu brasi

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 337, 338, 339 ... 453, 454, 455  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: