Hér kemurein:
Villt sig teygir fjalls um veg
Vanga meyjar strýkur
Í skák er ætíð skelfileg,
Skýr er lestri lýkur.
Nafni ertu að tala um Árna? Skal útskýra ef rétt reynist.
Nei ekki er það Árni.
Ég verð að játa sökum samviskubits að Gríslingur var dáldið volgur. Hér sannaðist hið fornkveðna að Sök bítur sekann. Ég hef sjaldnast í mínum svörum útskýrt hverja línu og á þess vegna bágt með að heimta slíkt hið sama af öðrum. En það gildir um þessa gátu að við henni er aðeins eitt orð, eitt svar, einn sannleikur.
Vestmannaeyja veiðitól
vísnasmiður andans
Suðurnesja grósku gól
geymslur höfuð vandans
Alveg brilljant!! Þetta er nýr og ferskur vínkill í vísnagátum. Línulausnirnar eru nú vísbendingar að öðrum vísbendingum, þetta geta bara snillingar............... já og grislingar.
Hér kemurein:
Villt sig teygir fjalls um veg
Vanga meyjar strýkur
Í skák er ætíð skelfileg,
Skýr er lestri lýkur.
Kráka?
Já svona er þetta, smásmyglin alveg að drepa mann. Ekki Hjálmur heldur Hjálmar.
Vestmannaeyja veiðitól ...(gömul lundaveiðibrella snæri með lykkjum stekt milli þúfna)
vísnasmiður andans ...(séra Hjálmar hagyrðingur og erindreki heilags anda)
Suðurnesja grósku gól ...(skeggapasveitin Hjálmar)
geymslur höfuð vandans ....(hjálmar) ...ok ég veit, ég veit.
Gríslagáta var líka góð og nú er ég búinn að fatta:
Fjalls sig teygir villt um veg - bergflétta
Vanga meyjar strýkur - flétta í hári
Í skák er ætíð skelfileg, - skákflétta
Skýr er lestri lýkur. - fléttan í sögunni.
[laga stuðlasetningu í leiðinni]
Flétta er rétt og takk fyrir ábendinguna - maður er oft full bráður
Tjah, Barbapabbi átti jú mislit börn með svartri konu og víst er hann Barbi okkar listaskáld.
En læknanemana er ég ekki alveg að sjá í gegn um.
Gambri?
ólöglegur, má ekki þekkja
þar er mikil ólga ger, segir sig sjálft.
og allir vilja meira
ef ekki allir þá flestir, nema það sé allirnemaeinn
þjóð veit þá þrír vita - einn = tveir