Einhverntíma kemur sú stund að ekki verður hægt að bæta frekar hin ýmsu met í íþróttum, ekki hægt að hlaupa hraðar eða stökkva lengra. Það er kanski ráð að gera einhverjar breytingar á íþróttagreinunum. Það vantar bara tillögur sem svo væri kanski hægt að leggja fyrir hin ýmsu íþróttasamtök.
mín tillaga:
110 metra grindahlaup með 15 kg fangakúlu hlekkjaða við ökklann.
[Skammskamm, Þessi þráður hét Nýbreittni í íþróttum en það er y og bara eitt t - Friðargæslan]
Þakka fyrir ábendinguna, ég er ferlegur í stafsettningu
Heyrðu, þetta væri kannski hægt að stunda á leikvanginum.Ljómar upp
Hvað með 800 metra hlaup þar sem farið er með ljóð eftir Poe?
Skeiðarárhlaup: Sko maður teipar svona litla báta neðan á fæturnar, og sprettir svo úr spori, eins og leið liggur niður einhverja af ánum. (skítlétt)
Heyrði í útvarpinu að okkar kæra Ísland hafi verið að setja enn eitt evrópumetið. Eigum núna lengstu vinnuviku í Evrópu. HÚRRA! HÚRRA! HÚRRAAAAAA!
Svo væri hægt að keppa í 200mm hlaupi
Tala nú ekki um langstökk niðurávið.
Já, heyrðu, ég er nokkuð góð í því! Ljómar upp
Flugsund í vöðlum og með ullarvettlinga
Fótbolti með fallbyssum?
Það gæti verið skemmtilegt að skipta hreinlega um áhöld í nokkrum greinum, spila t.d. blak með keilukúlu, keilu með borðtennisboltum, borðtennis með kúluvarpskúlum og kúluvarp með blakboltum.
Svo er ég viss um að það er einhvern vegin hægt að sameina dýfingar og skotfimi...
Skotbolti með handsprengjum held ég að gæti slegið í gegn. Allavega í áhorfi, veit ekki með ástundun.
Hvað með að spila körfubolta í stígvélum. Það er líka spurning um baseball, þar sem takmarkið er að slá kylfuna með boltanum og henda svo kylfunni að næsta manni sem grípur.
Mér datt líka í hug að tefla skák í þrívídd. Þannig að skákborðið væri ekki bara 8x8 heldur 8x8x8 og hvor byrjaði með 128 kalla í upphafi; 16 á hverri hæð.
Krulla á glóðum.
Eftir 10 bjóra kappakstur... þá fyrst sægi maður almennilegt crash..