Forsenda: Horfði á "Paradise Hotel" á Popp Tíví í gær
Niðurstaða: Naut eru gáfaðari en menn.
Já, ég asnaðist til að horfa á þátt nefndann "næsta topp módel bandaríkja norður ameríku" og komst fljótt að þeirri niðurstöðu að grámyglan í höfðinu á mér væri smámsaman að skemmast... ekki gaman að því.
Ég ráðlegg ykkur þá að halda ykkur frá 70 mínútum
fussar og sveiar
Ég ráðlegg ykkur þá að halda ykkur frá 70 mínútum
fussar og sveiar
70 mínútur finnast mér eiginlega allt annað mál,því þar eru menn ekkert að reyna að fela það að þeir séu einfaldlega að REYNA að láta eins og hálfvitar og það í þeim tilgangi einum. Það hefur ekkert með heimsku að gera. En þetta Paradise Hotel...Pfúff! Frekar fer ég að stunda heilsurækt en að horfa aftur á þetta helvíti.
70 Mínútur eru bara af hinu góða :)
Ghaaaa!
reynir að þurrka út broskallinn með öllum brögðum en allt kemur fyrir ekkert
Fari þetta bölvað blek í það heitasta!
Ég vil biðjast velvirðingar á þessu.
huh, ýtti óvart tvisvar á „Senda“ takkann. Vil biðjast enn og aftur afsökunar.
Svona er lífið. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann