Vinna - vil það ei
vænan - fögur mey
Kölski - klaufagrey
klofbrögð - sei sei nei.
(má þetta?)
Neita að ég neyti lyfja
nei það get ég ekki
neysluna þó neita að kryfja
neytendur ég þekki
Þekkingin, hún er þörf & kær
þeim, semað vilja
vita á morgun meiren í gær,
merkja & skilja.
Skilja þarf að nú skemmda mjólk
sem skilin var eftir úti
Kannski er hér kunnáttufólk
sem kann það á Baggalúti
Baggalúti býsna má
bragarvefin þakka
til að kíkja á hann smá
alltaf ögn ég hlakka
Hlakka til þess heilann dag
Hana fá í háttinn
Ljúfur góður legg mitt lag
Langann veiti dráttinn
Dráttinn oft dáyndis góða
dugar að veita af afli
ef draga úr drullu þarf slóða
eða dálítið stórum skafli
Úr skafli stórum sker ég út
skúlptúr ljótan.
Minnir kannski helst á hrút,
held ég brjót'ann.
Brjótum allt sem brotna kann.
Brytjum allt í spaðið.
Drullum yfir dómarann.
Dífum oss í svaðið.
svaðið baðið hreinsa hlýtur
held ég eldur brenni spítur
gýtur skítnum görn og nýtur
ég giska af visku: korkur flýtur
Flýti mér í snúnings-snatt.
Snýti mér í gamlan hatt.
Nýti mér svo allt mitt afl
& ýti þér í stóran skafl.
Skafli hvítum skyldi ég
skófla beint í nasir mér
víman yrði voðaleg
varla þarf að segja þér.
Þér ég fagna, fóstbróðir!
Fáum oss í nefið,
rekjum hvítar rykslóðir
& raulum saman stefið. ♪ ♪ ♪
stefið gefið hefur hér
hvítu öfugt snýtir.....(öfurg við að snýta, snörla upp s.s.)
skefur refur röskur gler
rítur, stöffið nýtir.
nýtir menn það muna vel
að mest af hvítu og hassi
inn er flutt í fluguvél
og fyrnastórum rassi
Rassi mínum á ég oft
á nú góðar setur.
Þaðan feimið þrýstiloft
þuklað nasir getur.
Getur verið vinur minn
vert að fá sjer fjóra
stóra kalda sterka inn
styrjaldar bjóra
Bjórinn þamba á barnum oft
bætir hann mig og kætir,
úr þörmum gassins þrístist loft
það lagar mig og bætir.