Ég vil ámæla þann mann sem ákvað að þetta umræðusvæði ætti að heita Efst á baugi. Þetta er ekki til fyrirmyndar, ekki til fyrirmyndar segi ég.
Ekki nóg með það að menn skuli ekki geta asnast til þess meðhöndla rétt þau dómsmál sem höfðuð hafa verið gegn þessum pörupiltum, heldur eru þeir að sölsa sig undir alla fjölmiðla á landinu. Baggalútur virðist alls ekki vera undanskilinn.
Þarf ég að hringja í Gunnar og láta hann í þetta mál? Hann hefur sambönd. Hann hefur sambönd víða, þekkir meira að segja marga vefforritara sem gætu tekið við rekstri þessa vefsvæðis ef á þarf að halda. Þið skulið bara passa ykkur, því að annars er hætt við að þessari sjoppu verði lokað og þið fluttir til Kanarí.
Svona gera menn ekki!
Ekki nóg með það að menn skuli ekki geta asnast til þess meðhöndla rétt þau dómsmál sem höfðuð hafa verið gegn þessum pörupiltum, heldur eru þeir að sölsa sig undir alla fjölmiðla á landinu. Baggalútur virðist alls ekki vera undanskilinn.
Þarf ég að hringja í Gunnar og láta hann í þetta mál?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Baggalútur ?! Hvaða upplýsingar hafið þjer um það ? Ef sattt er er um grafalvarlegt mál að ræða Brýst inn í nokkur tölvukerfi og stelur tölvupósti.
En hver er þessi Gunnar ?
Gunnari finnst gott að búa í Kópavogi. Meira segi ég ekki til að vernda viðkvæmar persónuupplýsingar. Reglustikan er vel þegin og mun nýtast vel til að mæla blýantana áður en ég naga þá. Það er óþarfi að naga of stóra blýanta, því að maður verður nú að hugsa um línurnar.
Eldlínan gæti verið betra nafn á þessum flokki.
Eða eldfima línan
Stelur meiri tölvupósti
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Eru það ekki landráð að selja Lútinn í hendur einhverra stigamanna og annara ótýndra glæpamanna? Klórar sér í höfðinu
Ég hefði haldið það. Heldur það
Gunnari finnst gott að búa í Kópavogi.
Það er þá staðfest með 2 heimildamönnum +inn er í Kópavogi.
Nermalli kalli balli
Baggalútur var sannleikurinn
Baggalútur er sannleikurinn
Baggalútur verður sannleikurinn