Jæja. Eftir ánægjulega viðkynningu við hina ýmsustu Bagglýtinga í hinum svokölluðu raunheimum síðastliðið föstudagskvöld hef ég ákveðið að taka upp (a.m.k. tímabundna) búsetu hér í Baggalútíu. Ég fæddist að vísu hérna fyrir þónokkru síðan en hef aðallega verið lurkur (e. lurker; gunga sem laumupúkast inni á spjallþráðum en tekur ekki þátt í umræðum) og er þ.a.l. eftir allan þennan tíma ekkert nema aumur nýliði með ritstíflu. Nú ætla ég hins vegar að taka mig á og fara að skreyta síður Gestapó eftir bestu getu.
Systir mín (Ísdrottningin) hefur líka hvatt mig mjög til innskráningar og hún hættir þá kannski þessu nöldri núna!
Þið eruð hér með vöruð við...
Velkomin, þótt ótrúlegt megi vera, þá kannast ég við nafnið á þér... þú hefur greinilega lurkast nokkuð mikið...
Gaman að sjá svona kumpánlega kynningu. Má ekki bjóða þér að taka þátt í Baggasvein. Greinilegur kvennkostur hér á ferð...
Vertu velkomin Anna Panna!
Ljómar upp. Og finnst alveg afsaplega gaman að segja Anna Panna því hann á vinkonu sem heitir Anna en hún er búin að banna honum að kalla hana Anna Panna ... oft.
Ég vona að þú hafir meira gaman að því að vera hérna sem nýgræðingur (og seinna fastagestur) en lurkur.
Þakka ykkur fyrir góðar móttökur, þið eruð svo æði.
Hundslappadrífa: Umsóknin í Baggasvein er komin, nú bíð ég bara með krosslagða fingur!
Krókur: Ég reyndi að banna vinum mínum að kalla mig Önnu Pönnu. Þá kölluðu þeir mig bara Önnu Pott í staðinn, prófaðu það á vinkonu þína og sjáðu hvort hún verður ekki sátt við að vera panna eftir það!
Listi umsækjenda verður uppfærður síðar í dag. Ég er yfir mig hamingjusamur með góðar undirtektir. Hjörtu mín slá sem harðast af spenningi. Umsókn þín var til prýði.
Sæl vertu, sem og blessuð. Hef tekið eftir þér á svæðinu. Gott að þú stígur fram í kastljósið, það baðar þig vel.
Velkomin á ritvöllinn. Dreifir blýöntum
Hæ!
Vertu velkomin og njóttu vel.
Velkomin Anna Panna pottur og kanna njóttu davalarinnar
Sest niður og bíður eftir klappi
Klappar Tigru
Lygnir aftur augunum og malar afar hátt
Anna Panna mundu að það er ég sem er fallegasta konan á Gestapó.