Þessi fyrirsögn á vefsvæði lygableðilsins Moggans (vei þeim falsmiðli) er alveg skemmtileg:
Sólmyrkvi sjáanlegur á Íslandi þann 3. október ef skyggni leyfir
Merkilegt. Er sól ekki hætt að sjást hér á þessum árstíma? Ég sé amk enga sól í dag. Snjónum kyngir hinsvegar niður.
Er veðurmaskínan í lamasessi Hakuchi?
Nei, ég á nokkuð sökótt við Akureyring nokkurn. Því miður virkaði einstaklingsmiðaði varnarhemjarinn ekki til að vernda ykkur Bagglýtinga þarna norður frá og þurfið þið því að þola smá snjó þarna sem hliðarverkanir þangað til hefndaraðgerðum er lokið, þ.e. þegar Akureyringurinn er frosinn í hel og húsi hans tortímt.
Stingur tungu út um annað munnvik er hann reynir að stýra fellibylnum eftir götu Akureyringsins með stýripinnanum
Bensínstöð fýkur upp og lendir í pollinum
Úbbs, smá mis.