..lof mér að giska - og hann er fastur úti í skurðu?
Vegna gefinna loforða var mér ófært að láta sjá mig á þessum stórkostlega listaatburði, því miður. Fréttir um fjölföldun tónleikanna komandi föstudag gleðja mann og mús.
Mér finnst að þið eigið að endurtaka tónleikana 30. sept. þar sem ég mun heiðra höfuðborgarbúa með nærveru minni það kvöld.
Og svona í framhjáhlaupi, Enter, þá er auglýst á Græna hattinum á Akureyri, að þið verðið að spila fljótlega. Sama hvað það þýðir svo.
Getið þið svo, vinsamlegast, reynt að halda tónleika sem ég get farið á? Líkurnar á því að ég fái að fara á tónleika klukkan tólf á miðnætti eru stjarnfræðilegar!
En takk aftur (til endimarka vetrarbrautarinnar - og áfram) þið sem mætuð - og þið hin; takk fyrir ekkert, Júdasar.
Þetta eru þá þakkirnar fyrir þá fórn sem ég færði svo Köntrísveitin smitaðist ekki af helvítis pestinni sem hrjáði mig í 9 daga!
En takk aftur (til endimarka vetrarbrautarinnar - og áfram) þið sem mætuð - og þið hin; takk fyrir ekkert, Júdasar.
Þetta eru þá þakkirnar fyrir þá fórn sem ég færði svo Köntrísveitin smitaðist ekki af helvítis pestinni sem hrjáði mig í 9 daga!
Spurt er um pest.
Er svarið Klamedía?
Doofus þú ert eiginlega farinn að fara svolítið í taugarnar á mér... Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Sorrý. Ég giska þá á kynfæravörtur.
Grátlegt að missa af tónleikunum. En þó ég sé fjölhæfur með afbrigðum þá vantar mig þann hæfileika að geta verið á fleiri en einum stað í einu. Brestur í óstöðvandi grát
...................En takk aftur (til endimarka vetrarbrautarinnar - og áfram) þið sem mætuð - og þið hin; takk fyrir ekkert, Júdasar.
Ekkert að þakka.
Jæja, það er ekki oft í lífinu sem að maður fær annað tækifæri, mæta ekki bara allir á morgunn.