Mikið fer fyrir umfjöllun um Köntrí og Vestern tónlist hér á Baggalútsins síðum. Tónleikar eru haldnir fyrir áhugafólk um þessa tónlistarstefnu. Hvað um okkur sem helst dillum okkur við taktfasta tóna Chimurenga tónlistar en síður við skræka nefmælta kúasmala sem í gríð og erg reyna að skrapa kúadellur undan stígvélum sínum í svonefndum SHIT SCRAPING DANCE. Þar sem fólk raðar sér í langar raðir og skrapar kúaskít undan stígvélum í gríð og erg og kíkir svo reglulega undir sólann hvort allt sé farið. "Einkennilegur dans"
Chimurenga tónleika fyrir okkur hin er krafa fjöldans. Listamenn gætu verið td. Shoma-kórinn og einnig Thomas Mapfumo. Einlægri ósk og áskorun til handa Baggalúts er hérmeð komið á framfæri.
Kk. D.F. Andersen
Þú hefur verið of lengi í burtu Doofus minn...
Heldur vil ég fá Calipsó tónleika.
Hvað með t.d. Calipsó útsetningu á 9. sinfóníu Beethovens. Þá væri eitthvað komið sem fútt er í.
Heldur vil ég fá Calipsó tónleika.
Hvað með t.d. Calipsó útsetningu á 9. sinfóníu Betthovens. Þá væri eitthvað komið sem fútt er í.
Hver er það? Verður spennt
Ef að það á að fara að biðja um óskalög, þá ætla ég að biðja um að plata SigurRós, ( ), verði tekin í dauðarokks útgáfu. Tel ég það hina mestu skemtun og öllum til yndisauka og ánægju.
-
Tónlistarkatalógur Slipknot í flutningi Sigurrósar...
Brothers in arms í flutningi 14 fóstbræðra og Pálma Sigurhjartar á orgelinu í Hallgrímskirkju.
Það er ekki vit í öðru en pasa doble,,, það er alveg skralfjörugt
Íslenskur tvísöngur á "Það mælti mín móðir", hlutirnir verða ekki íslenskari en það.