— GESTAPÓ —
Vísnagátuleikur...
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 168, 169, 170 ... 191, 192, 193  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 7/9/05 14:51

Ha - ha gott hjá þér - í síðustu línunni átti ég við að stórfrétt er efst á baugi!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 7/9/05 18:51

Grislingur mælti:

Einhvernveginn svona:

Út á velli snöggur snýst
snjall í sínu fagi
eins og skrugga fram hann skýst
skorar mörk í lagi.

þessi ætti kanski heima í mannanafnavísnagátudálkinum!

Eiður Smári? ‹flissar›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 8/9/05 13:08

Eiður var það heillin

Ný gáta:

Efst á flík við finnum oft
lítill fugl sem fer á loft
kjördæmi í kosningum
á kind sem sést á reyfunum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
feministi 8/9/05 13:23

Kragi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 8/9/05 13:34

Kragi er rétt

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/9/05 18:39

Fínar gátur Gríslingur... endilega halda áfram meðan þú hefur orku til...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 12/9/05 16:45

Trítlar um og tvö með horn
Tært er ákavíti
Ekki sést á klæðum korn
kom ei veðralýti

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 13/9/05 12:09

Nennir enginn að giska?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Línan 13/9/05 12:23

Algjörlega týnd í þessari.
‹Brestur í óstöðvandi grát›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 13/9/05 12:43

Réttir? Rollur?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 13/9/05 13:03

Hreinn?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 13/9/05 13:09

Vímus hafði það... Hreinn.
Trítlar um og tvö með horn - Dýrið Hreinn, Hreindýr
Tært er ákavíti - Hreinn vökvi
Ekki sést á klæðum korn - Hrein föt
kom ei veðralýti - Hreint veður er bjart veður

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 13/9/05 13:14

Allt á hreinu hér!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Línan 13/9/05 13:34

Urrr....Auðvitað !‹Strunsar út og skellir á eftir sér›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
ender 14/9/05 02:53

Streyma frá þér stafirnir
strekkir vel á ró
labbar gegnum læstar dyr
leysir gátur þó

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 03:05

Lykill.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 14/9/05 11:26

Hefur þá á nefi þínu
á vorin þrotnir afli,
í þá steig í ástarpínu
upp þá fer í tafli.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 11:44

Vængir

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 168, 169, 170 ... 191, 192, 193  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: