Óþarfi að ómaka sig eftir sneplinum. Hér er úrklippildi:
Hvernig gengur salan annars? Tónleikaferðir á döfinni? Bara að spá, hvort það sé tímabært að koma af stað grúppíugengi??
Tíhí
Hverslags kona heldurðu eiginlega að ég sé?
Eru þeir...hmmm....sætir annars?
Gefur frá sér vellíðunarstunuÓforbetranleg sæla umvefur oss. Vér höfðum haldið að frumútgáfan á "Ást á pöbbnum" yrði eigi toppuð. En öllum líðum má ljóst vera að yfirskilvitlegur flutningur Baggalúts á þeirri perlu er allir vildu kveðið hafa er fullkomlega fullkominn. Brestur í grát[/i][/quote]
Það mun sjálfsagt gleðja stjórnina að loksins er langþrá bið mín hér á austfjörðum á enda.
Sló ég niður mann og annann í veikri von um að ná mér í síðasta eintakið í BT á Egilsstöðum og hafðist það. Uppskar ég vænt glóðurauga, tapaði tveimur tönnum úr efrigómi, en eintakið er MITT Ljómar upp
Verð ég að taka fram að ég finn mig verða að betri manni við að heyra snilldina byrja og mun ég hlusta stanslaust næstu sólarhringa með tárin í augunum af gleði. xT