Hvað finnst mönnum um nýja útlitið? Stillir sér upp og brosir framan í salinn
Ég var að klára æviágrpið og þurfti eitthvað virðulegra útlit.
Nú þegar þú ert kominn með þetta glæsilega virðulega útlit. Þá stendur eftir að gælunafnið er ekki í neinu samræmi við virðuleikan. Hin myndinn var svona töffara-naglaleg sem átti ágætlega við gælunafnið.
Hvernig væri ef þú myndir nota tækifærið og skipta um nafn sem nær upp í þennan ískalda virðuleika og líka í ljósi væntanlegs embættis þíns sem hermangari Baggalútíu.
Ég mæli með einhverju nafni sem byrjar á H. Hvað með t.d. Hersir? Sannarlega virðulegt og fornt orð sem ber með sér stríðsæsing. Þá gætir þú bætt aftan við einhverju mögnuðu eftirnafni (sniðugast að hafa það stuðlað, þ.e. byrja á H). Hersir Herjan t.d.?
Til að byrja með gætir þú haft útskýringu um að þú hafir verið Dúddi í undirskrift hjá þér. Það ætti að lágmarka ruglinginn fyrst í stað.
Þú segir nokkuð, hvernig breytir maður nú eiginlega nafninu?
Eftir nánari íhugun hef ég ákveðið að bæta bara við don fyrir framan. Það ætti að gefa ákveðna dýpt í nafnið, geri það eftir að ég verð fastagestur á Gestapó, það fer nefnilega að styttast í það.Ljómar upp
Þú sendir Enteri einkapóst og biður um breytingu. Hann er yfirleitt greiðvikinn, ef hann er ekki fullur.
Mæli með H-legu góðu nafni. Don bætir þó virðingarblæinn. Hvað með Don Duce?
Lon og Don
Don Johnson, nei spaug! Almáttugur hvað þetta var lélegur brandariRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið