Þráður þessi er ætlaður fyrir umræður vegna útgáfu köntrískífunar 'Pabbi þarf að vinna' sem er nú þegar talin tímamótaverk og er þá lítið lof borið á skífuna. Merki eru um straumhvörf í alþjóðastjórnmálum vegna útgáfu skífunnar.
Svo... komið nú með ykkar hugsanir um skífuna og álit.
Ég var fyrst að fá diskinn í gær, sökum því hvað hann var lengi að komast í þá verslun sem er þægilegust fyrir mig að fara í, þ.e. BT Skeifunni. Fór í hádeginu til að athuga í fimmta skiptið í vikunni hvort hann væri kominn, en nei. Þá fór ég að fá mér hádegissnæðing og sá þá BT bílinn vera á leiðinni í búðina og hljóp þá eins og ég ætti lífið að leysa og athugaði hvort diskurinn væri ekki með í sendinguni, og hann var það. Ég fjárfesti í tveimur eintökum, annað fyrir mig og annað fyrir hann Berserk. Er að hlust þessa stundina á Yfirvararskegg og er líklega búinn að hlusta á plötuna, tja, svona fimm til sex sinnum í gegn, og finnst hún alveg hreint frábær.
Þessi plata er algert meistaraverk. Þó hef ég ekki hlustað á hana ennþá.
Hún er snilld.
Ég var fyrst að fá diskinn í gær, sökum því hvað hann var lengi að komast í þá verslun sem er þægilegust fyrir mig að fara í, þ.e. BT Skeifunni. Fór í hádeginu til að athuga í fimmta skiptið í vikunni hvort hann væri kominn, en nei. Þá fór ég að fá mér hádegissnæðing og sá þá BT bílinn vera á leiðinni í búðina og hljóp þá eins og ég ætti lífið að leysa og athugaði hvort diskurinn væri ekki með í sendinguni, og hann var það. Ég fjárfesti í tveimur eintökum, annað fyrir mig og annað fyrir hann Berserk. Er að hlust þessa stundina á Yfirvararskegg og er líklega búinn að hlusta á plötuna, tja, svona fimm til sex sinnum í gegn, og finnst hún alveg hreint frábær.
Mig langar í geislaspilara.
Brestur í óstöðvandi grát
Pabbi þarfað vinna fór beint inn á topp 1 hjá mér. Magnað verk.

Ég hef nú ekki notað geislaspilara í háa herrans tíð. Ég notast aðallega við tölvur og íPóða.
Hvunær mun þetta tímamótaverk verða sett á markaðinn hér í Bandaríkjasveit?
Það er ekki gott að segja. Tollayfirvöld í mörgum ríkjum hafa aftrað innflutningi plötunnar.
Ríkisstjórnir um víða veröld telja boðskap 'Pabbi þarf að vinna' hættulegann og að almenningur megi ekki heyra hinn sanna boðskap. Lög á borð við 'Kaffi og sígó' eru gott dæmi.
En Baggalútur mun hafa betur í baráttuni við alræðið!
Lifi sannleikurinn!
Ég heyrði í þeim á rás tvö á föstudaginn. Það var ákaflega gaman að heyra þá syngja Ást á pöbbunum eftir Leoncie!
Er hægt að láta það lag á netið!Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þetta er tvímælalaust meistaraverk sem ætti að senda á hvert heimili á Jarðarkringlunni.
Er hægt að láta það lag á netið!Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Styð! Styð!
Hvenær kemur platan annars á výnil?
Ég hef verið stoltur eigandi útgáfunnar í 3 daga núna og ég hef nánast ekki getað rifið eyrun frá græjunum. Þvílík tök á tungumálinu! Lagið um Öskjuhlíðina finnst mér einstaklega frábært. Loksins er kominn kveðskapur sem lætur mann gleyma Esjunni
Uuuu, hérna.... ég hef ekki enn komist yfir eintak svo ég hef lítið til málanna að leggja að svo búnu. Mig langaði bara að benda þeim á sem það geta að það þarf að fækka b-unum í titli þráðarins. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
En stendur þriðja b-ið ekki fyrir Baggalútur ? En fækka mætti b-unum niður í eitt með rithættinum 'Pab³i' Ljómar upp
En að mikilvægara máli: Vjer leggjum hjer með formlega til að rekist gestir hjer á dóma um þetta meistaraverk í falsmiðlunum þá láti þeir vita af því hjer í þræði þessum. Verði einhverjir dómar neikvæðir er nefnilega líklegt að margir hjer hafi ýmislegt við það að athuga Athugar gagnagrunna forsetaembættisins yfir GPS-staðsetningar nokkurra gagnrýnenda og setur hnitin inn í stýribúnað fyrir kóbaltflugskeyti
Mikið óskaplega sem lagið 'Kaffi og sígó' sækir á mig... heyri það óma þótt slökkt sé á tækinu. Er ég orðin kex-ruglaður, þarf kannski að panta tíma hjá Zoidberg. Starir þegjandi út í loftið