— GESTAPÓ —
Well, I say!
» Gestapó   » Almennt spjall
     1, 2  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Gleðigöndull 14/8/05 03:16

Jæja... hvar hef ég verið? Ég veit svarið við því... mér var rænt af geimverum og tekinn til ársins 29 þar sem einhver fúlskeggjaður, fullorðinn karlmaður var að reyna að sýna mér spilagaldur, en auðvitað sá ég í gegnum hann! 2 hjartaásar... piffff..!

Var svo tekinn til Roswell, árið 1947, rétt eftir að ég leyfði geimverunum að smakka bjór. Og ég verð að segja að áfengi fer illa með vitsmunaverur því þær brotlentu. Rétt náðum að hlaupa á brott (eða réttara sagt slímuðu verurnar burt með mig í einhvers konar flutningargeisla), með ekkert annað en eitt stykki tímavél.

Svo nú búa þessar ljótu geimverur hjá mér um stundarsakir... og ég verð að segja að þær eru frekar skemmtilegar. Slefandi útum allt og dragandi slímugar lappirnar gegnum húsið. Gera lífið skemmtilegra og litmeira. Bíðið, bíðið... ein þeirra ætlar að skrifa eitthvað, hér byrjar hann.

ZURG!

Okei... og ég krefst þess að fá allavega smá lófaklapp þar sem ég er byrjaður á Baggalút aftur. Tekur mig margar aldir að koma mér aftur á strik eftir þessar hryllilegu kynlífs-tilraunir sem ég þurfti að líða. Þó verð ég að hrósa geimverunum á hangikjötssmekk, þær vita greinilega að unga stúlkan Jessica Alba er góður kvenmannskostur. En jæja... ég er farinn að brenna fötin mín og æla því ég er kominn aftur inná Baggalút!

‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Sjaldan er Bára stök, er hún hefur mök...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/8/05 04:47

Klappar.
En til þess að fylsta öryggis sé gætt, legg ég til að þér verði rennt eina ferð í gegnum Skrumgleypinn.
Sért þú geimvera sem hefur stolið likama Gleðigönduls í þeim tilgangi að sýkja íbúa Baggalútíu og veikja varnir vorar þá mun salíbuna í gleypinum koma upp um þig þegar þú ferð að kalla á hjálp á útplánesku.

En annars munu yfirmenn leyniþjónustunnar taka ákvörðum þegar þeir vakna, um hvernig best verður staðið að veiru og geimveruskönnun á því sem virðist vera þú en er jafnvel ekki.
.
Sértu búin að vera í haldi drukkina útnára um langt skeið eins og þú segir er nauðsynlegt að hafa þig í einangrun þar til ítarlegar pyntingar og eldþolsprófanir hafa farið fram, ásamt sólkerfis-afstemmingu í Skrumgleypinum.
En reynist allt í lagi þá: Velkominn heim.‹Yfir hafið úr geim, þau verma hin..Bla,bla,bla›

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ittu 14/8/05 16:28

Allu allu allu. Qina Baggalútur qaripaasavaaroq?

Kalaallit nunanut tikilluaritsi!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 14/8/05 17:44

Gleðigöndull mælti:

með ekkert annað en eitt stykki tímavél.

‹Fær græðgisglampa í augun í bland við svip er ber vott um mikinnn áhuga› Hvar er hún ? Hvar er hún ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 14/8/05 18:03

Ég hef aldrei skilið Z-hneigð geimvera. Tungumál þeirra, og nöfn virðast oftar en ekki innihalda z í öðru hverju orði.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 14/8/05 21:44

Það helgast af zmámælgi þeirra.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hóras 14/8/05 22:21

Flugnadrottinn á við sama vandamál að stríða

Eigandi einnar af níu sálum Tigru • Eigandi Armani spennutreyju • Fjölmiðlaráðherra • Heilagur Ári Hreintrúarflokksins • Ekki hamstur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 15/8/05 14:30

Voru ekki há-z-ar á þessu geimskipi?

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 15/8/05 14:34

Hakuchi mælti:

Ég hef aldrei skilið Z-hneigð geimvera. Tungumál þeirra, og nöfn virðast oftar en ekki innihalda z í öðru hverju orði.

Er það ekki bara vegna þess að það er svo mikið til af zetum eftir að við Íslendingar hættum að nota þær?

Kannski, já ...bara
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 15/8/05 14:38

Vamban mælti:

Voru ekki há-z-ar á þessu geimskipi?

H ZZZ ef til vill líka?

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 15/8/05 14:44

Þeim er eflaust ekki til z-unar boðið!

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 15/8/05 14:48

Það zzz strik í reikninginn.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/8/05 14:50

Krókur mælti:

Hakuchi mælti:

Ég hef aldrei skilið Z-hneigð geimvera. Tungumál þeirra, og nöfn virðast oftar en ekki innihalda z í öðru hverju orði.

Er það ekki bara vegna þess að það er svo mikið til af zetum eftir að við Íslendingar hættum að nota þær?

Þjer meinið að Íslendingar hafi farið í Z-verkfall ? A.m.k. sitjum vjer framan við tölvu núna (gerðum vjer það eigi birtist innlegg þetta eigi á Gestapó eftir um 5 sekúndur).

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Gleðigöndull 16/8/05 00:20

Hafiði engar áhyggjur... það gæti aldrei zkeð að ég myndi vera geimvera ,,in dizguize!"

. . .

ZURG! . . . sleeeeeeeeeef . . . BRAAAAAK!

. . . Whaaa?

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við, rekur hausinn í og í ljós koma bifhár!›

Sjaldan er Bára stök, er hún hefur mök...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 17/8/05 11:09

Vladimir Fuckov mælti:

Þjer meinið að Íslendingar hafi farið í Z-verkfall ? A.m.k. sitjum vjer framan við tölvu núna (gerðum vjer það eigi birtist innlegg þetta eigi á Gestapó eftir um 5 sekúndur).

Ja, það er að minnsta kosti til nóg af þeim. Sjáðu:

ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz
zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Kannski, já ...bara
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 18/8/05 00:42

Vespur og býflugur stálu „z-unum“. Um það leiti sem býflugur tóku að birtast á Íslandi fór notkun z að minnka svo um munaði. Eftir að vespurnar mættu hefur notkunin nánast alveg dottið niður.

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 18/8/05 10:29

Þegar maður hugsar til þess þá hljóta þessi skilaboð: "Z-brautir og gluggatjöld, Z-brautir og gluggatjöld. Höfum fyrirliggjandi mikið úrval af Z-brautum og gluggatjöldum. Z-brautir og gluggatjöld." að hafa verið dulin skilaboð frá geimverum til býflugna og geitunga á Jörðinni um að innrásin væri hafin. Þessi auglýsing var oft send út í Ríkisútvarpinu rétt fyrir hádegisfréttirnar, rétt fyrir síðasta lag fyrir fréttir, einmitt þegar fólk uggir ekki að sér.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 18/8/05 10:39

Svona til að fá þetta á hreint þá stálu flugurnar setunum fyrir hönd geimveranna? Og þess vegna er Mývatn svona vinsæll geimverustaður.

Kannski, já ...bara
LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: