Ég var beðinn um að halda hér stutta tölu í tilefni þess að ég hef nýverið skráð mig á þennan ágæta afþreyingavef.... en þar sem löngu er kominn háttatími hef ég ákveðið að sleppa því í bili.
Ninjastjarna þrykkist í hurðina, rétt hjá höfði Kvaran
Hægan nú, pílagrímur. Staldraðu við á leiðinni til svefnlenda.
Gerðu endilega grein fyrir þér og þínum högum, hverra manna þú ert og hvað þú ert að vilja í þessa stafrænu vin í eyðimörkinni.
Ojá. Ekkert humm og hangs með það, út með sprokið.
Ætli hann sé náfrændi Kolfinns Kvaran þessi?
Ég veit það ekki. Ég treysti á að Frelsishetjan muni geta dregið það upp úr honum á morgun með gljóandi járntöngum.
Það þarf að kenna þessum bölvuðu nýliðum að tala ekki um Baggalút - Gestapó - sem afþreyingarvef. Á Gestapó fara einungis fram alvarlegar umræður og á Baggalúti er bara skrifaður sannleikurinn.
Ninjastjarna þrykkist í hurðina, rétt hjá höfði Kvaran
Hægan nú, pílagrímur. Staldraðu við á leiðinni til svefnlenda.
Gerðu endilega grein fyrir þér og þínum högum, hverra manna þú ert og hvað þú ert að vilja í þessa stafrænu vin í eyðimörkinni.
Jæja þá. Hingað er ég kominn í von um að vera tekinn í sátt innan Gestapó reglunnar og biðst afsökunar á villandi talsmáta mínum sem fékk Smábagga til að trúa því að ég héldi að hér væri um að ræða afþreyingarvef... það var einungis til að villa um fyrir óvininum.
B. Ewing er nálægt því að hitta naglann á höfuðið en hitti í stað þess þumalfingur vinstri handar þar sem ég er fjarskyldur bróðir Kolfinns Kvaran.
Ég trúi því varla að ég hef hitt á hið rétta fylgsni gestapó þar sem ég hef eytt þorra ævi minnar í leit að þeirri reglu og um leið sannleikanum. Ef eitthvað er að marka orð smábagga um að [hér sé] bara skrifaður sannleikurinn þá er ég á réttum stað og vonandi kominn til að vera.

Það hefur aldrei verið neitt að marka orð smábagga um nokkuð.
Nokkurn tímann!!
horfir á smábagga og þvínæst uglu
Hverjum skal trúa... hverjum skal trúa
Smábaggi virðist þó hafa rambað tilviljunarkennt á sannleikann í þetta sinn. Hér leitum við sannleikans og hér er einungis sannleikurinn skrifaður.
Þú ert á réttum stað, sannleiksleitandi.
Sannleikurinn er að ég elska þig Hakuchi-sama og er mér sama um þjóðerni þitt. Þetta er sannleikurinn og sannleikurinn er ofar öllu og því er þessi vefur ofar öllu annað en leikjaþamb og þinghlustun. Svoleiðis áhugamál eru bara skotmörk fyrir vembil truflarann minn.
Byrjar að taka upp og senda út sápuóperu í beinni
Sannleikurinn er að ég elska þig Hakuchi-sama og er mér sama um þjóðerni þitt. Þetta er sannleikurinn og sannleikurinn er ofar öllu og því er þessi vefur ofar öllu annað en leikjaþamb og þinghlustun. Svoleiðis áhugamál eru bara skotmörk fyrir vembil truflarann minn.
Það gleður mig að þú hugsir hlýtt til mín og að sannleiksást þín er einlæg. Þú ert göfug padda.
Skál fyrir sannleikanum!
Ljómar upp
...
B. Ewing er nálægt því að hitta naglann á höfuðið en hitti í stað þess þumalfingur vinstri handar þar sem ég er fjarskyldur bróðir Kolfinns Kvaran.
bindur um fingurinn með sárabindi Hvað er ég að gera? ég er mjúkur og loðinn á höndunum og hef alltaf verið. Þetta var ekkert sárt! sýnir samt öllum umbúðirnar bara því þetta var svo vel gert að það væri skömm að henda þeim strax

Segir sannleikann um að B. Ewing hafi ekkert meitt sig og allir segja hí á B. Ewing

Hvaða kjánaskapur er þetta í þér Knútur? Það vita allir hér að ég agalega krúttlegur og mjúkur. Þú mátt hóa og hía eins og þú vilt en ekki reyna að lýsa gerðum annarra, að minnsta kosti var síðasta innlegg langt frá því að fá undirtektir. Vefur hina hendina í sáraumbúðir með miklum erfiðismunum og byrjar með sáraumbúðahandabrúðusýningu.
Þú ert mjög krúttlegur og mjúkur... allavega af myndinni að dæma.
Ég skal muna þetta með að lýsa ekki gerðum annara, ég er nú bara nýliði sem er að reyna að læra á hlutina hér.