Fyrir þá sem ekki vita, þá eru tvö ár frá því að fyrstu formlegu skráningar Gestapóa voru leyfðar... langt síðan maður hefur séð mörg af þessum andlitum...
Grunaði ekki Gvend - og mig líka. Er ekki ráð að halda upp á þessi merku tímamót með einhverjum hætti? Væri ákavítisdrykkjukeppni ekki vel við hæfi? Nú, eða þá ljóðabálkur.
Ætli þetta verði ekki svona á næstu dögum ... Hlakkar til rafmælisins síns
Það er vonandi að eitthvað af þeim fjölmörgu sem eiga rafmæli í dag og næstu daga, fjölmenni... drykkjukeppni og allsherjar sukk er ansi mikið viðeigandi á svona tímamótum... Opnar kassa af Ákavíti og býr sig undir sukk
Ég er byrjaður að fagna nú þegar. Skál xT
Listinn í dag er ekki eins langur og í gær en engu að síður stútfullur af verðugum fastagestum. Ég óska Johnny Park, Jóvgan við Haldið, Bismarck, Rauðbirni og Kolfinni Kvaran til hamingju með rafmælið. Megið þið lengi lifa en þó ekki þannig að þið verðið baggi á heilbrigðiskerfinu.
Skál! xT
Gefur rafmælisbörnunum gulnaða límmiða með myndum af Kevin Keegan og Michel Platini
Já vel á minnst, til hamingju allir sem einn.
Ég mun fagna rafmæli mínu á fimmtudaginn kemur í kyrrþey, blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast mín mega drekka Ákavíti úr birgðum ÁTVB eins og þið viljið... þið vitið hvar lykillinn er...
Sendir öllum rafmælisbörnum samúðarkort
Gleðst með rafmælisbörnum dagsins og komandi dags með því að skála
Skál xT
Sendir öllum rafmælisbörnum samúðarkort
Veiti öllum rafmælisbörnum samúðaskort