Fílar Kiel.
Svimar af sælu eftir allt knúsið
Stúlkur, þið eruð ástæðan fyrir því að maður fer fram úr á morgnana. Mikið var þetta yndislegt.
Ljómar upp
Fiiiive!
Hoppar upp og gefur Nafna high five eins og aumkunarverður keiluspilari sem hefur náð fellu
Reynir að finna eihverja hnökra á spjallborðinu til að halda Enter uppteknum
Hvernig er það, á ekkert að knúsa Ívarinn sinn?
Víst er ég búin að knúsa þig og ausa þig gjöfum (lestu bara 10.000 þráðinn þinn!) en ég er svo sem ekkert nísk á gotteríið Knúsar Ívar aftur Bara ekki segja Hexiu frá þessu, það gæti misskilist...
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni í nefið
Ég er nú alltaf síroðnandi, veit ekki af hverju.
Ég verð nú að viðurkenna hér með að mér þykir hið nýja yfirbragð hér afar skemmtilegt og viðkunnulegt. Var að mæta hingað aftur í fyrsta sinn eftir sumarorlof og er það gaman.
Þetta líkar mér við, en er ekki hentugra að rita á kálfaskinn, meira til að kálfum hér á landi en blessuðum trjánum!
Kálfum, álfum og bjálfum.
Það ætti að leyfa það að húðfletta eitthvað af þessum bjálfum sem eru á þingi til að mynda og nýta þá í þjóðarbúið. Ekki eru þeir að gera mikið gagn þar sem þeir eru.
Þetta er yndisvert. Það eina sem mér finnst ama að er aflagning baunsöfnunar. Ætlaði að raka inn baunum eftir opnunina sem nú er það ei hægt. Svona er lífið.
Gef ekki baun fyrir þessar baunir. Gott að vera laus við þær.