Þeir komu, þeir sáu, þeir lutu í gras.
Í stúkunni heyrðist ei tal eða mas.
Þeir komu, þeir sáu, þeir lutu í gras.
Í stúkunni heyrðist ei tal eða mas.
þeir voru ei bestir
nær því langverstir
bikar ei verðskulda eftir slíkt fjas
Þeir komu, þeir sáu, þeir lutu í gras.
Í stúkunni heyrðist ei tal eða mas.
mér um varð og ó
og ánægður hló
gott á þau flónin ég fékk mér í glas
Varla má á milli sjá
margur kann að ríma
klaufaskapur KR hjá
kom á besta tíma!
Af einhverjum ástæðum endaði þessi staka í því að fjalla um glæsilega "botna" ef svo má segja, á limrunni, svo og einnig um yndislegt tap hinna röndóttu...Það má segja að öfgafullt hatur mitt hafi troðist inní góðsamlega tilraun til að hrósa ykkur hagyrðingunum... Brestur í óstöðvandi grát
kannski þeir ættu að ástunda skvass
ekki þeim hæfir knöttur
gladdist ég þegar að rann á sinn rass
röndóttur apaköttur
Vesturbæjar- riðar -veldið til falls.
Vonlausir þrælar eins peningabralls.
Röndóttir brátt sínum búningum henda.
Er bikar fær Valur á Hlíðarenda.