— GESTAPÓ —
Enn er kveðist á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 70, 71, 72 ... 453, 454, 455  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 9/2/04 16:49

Æsilegum leik var lýst,
losti tók þar völd.
Sköpum renndi Skabbi víst,
skaufa fram á kvöld.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 10/2/04 00:14

Kvöldið kalt nú enda tekur
kann ei Leibb'að yrkja
Venni vinur ljóð mín hrekur
vit úr þeim nær að kyrkja

‹Brestur í óslökkvandi biturleika›

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 10/2/04 15:53

Kyrkja andann kirkjan reynir
Kalli biskup ruglar oft
Sterka fjandann styrkja kveinin
stakk af burt með Galdra-Loft.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 10/2/04 17:07

Galdra-Loftur getur lítið
galdrað, enda dauður.
Engum finnst það ofur skrýtið,
enginn er hér sauður.

Skammkell sýra. Æsti prestur og Guðafræðingur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
plebbin 10/2/04 20:35

Sauðurinn minn Sævar heitir
Sæmilegur er
Hestamaðurinn honum beitir
Halló, hann er ber.

"Þið eruð öll kúkalabbar" - Halldór Laxnes
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Fellaskáldið 10/2/04 21:15

Ber að neðan bægslast ég
í blautri svaða físu
mér finnst sú iðja unaðsleg
umvafinn lostans krísu

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 10/2/04 22:23

Krís'í skáldið-Fella fer
fálmand'undir blússur.
Enginn skyldi ætla sér
annara manna jússur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 10/2/04 22:28

Jússur Mjási Jesús veit,
jafnan girnist raftur.
Gaman er í gálusveit
og gott að sjá þig aftur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 10/2/04 23:31

Aftur sest við iðjuna
opna hjá mér smiðjuna.
Leik við ljóðagyðjuna
lítið eitt um miðjuna.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 10/2/04 23:58

Miðjan hentar Mjása vel
málar fögur ljóðin
í hríðarbyl og hryssingsél
hrímar eigi slóðin

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 11/2/04 16:20

Slóðin farin, slekk á vél.
Slóða kýr á básum.
Glóð í arin, gekk á él.
Guddu er kalt á tásum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 11/2/04 17:26

Tásum á ég tippla
troðna slóð
skrítnu á ég skrippla,
- skemmtiljóð

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/2/04 18:12

Skemmtiljóð ég skæli
skemmt er á mér hné
Vont er að ég væli
varla hvorki né.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 11/2/04 20:34

né má kappann hýða.
Nískur hvorki nytsamur,
aldrei vild´ann hlýða.
Alltaf var hann ódámur,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 12/2/04 00:35

Ódámur með úfna lund
enn við ljóðin rjálar.
Klæmist heila klukkustund
af kröftum lífs og sálar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 12/2/04 00:45

Sálarheill þar setti’ að veði
soralegur prestur
máta fýstu mjöðm að reði
maður einn og hestur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 12/2/04 00:53

Hesturinn minn heitir Skjóni.
Hratt hann þeysir yfir mel.
Betr´en nokkur bíll á Fróni.
Bikkjuna ég aldrei sel.

Skammkell sýra. Æsti prestur og Guðafræðingur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 12/2/04 00:58

Selinn heldur súran át
í sæmilegu blóti
á reykingum var lítið lát
labbað gat í sóti

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 70, 71, 72 ... 453, 454, 455  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: