Dregur konunginn út og lætur byssukúlum rigna yfir herbergið
Rankar við sér.
Agh...óh við skegg spámannsins...þetta hvað þetta var slæmt.
Ég þakka þér innilega fyrir björgunina Sverfill. Ég mun mæla með því að þú fáir heiðursorðu.
Þetta...fyrirbæri...þarna...þessi „þáttur“. H-Hann gæti komið að gagni. Þetta gæti orðið eitthvert áhrifaríkasta pyntingartæki sem heimsveldið býr yfir.
Sendu sérsveitarmenn í einangrunarbúningum og með eyrnatól og skipaðu þeim að taka þennan þátt og fara með hann beint í rannsóknarstofur Varnamálaráðuneytisins.
Þetta gæti orðið mikilvægasta vopnauppgvötun síðan kjarnorkusprengjan var fundinn upp.
Valdaglampinn blossar upp í augunum.
Heyrðu, það er rétt. Best að senda inn einhvern vitleysinginn...
Sendir menn með blýtunnu undir viðbjóðinn.
Stormar inn, mjög áhugasamur Er búið að finna upp nýtt gjöreyðingarvopn ? Ljómar upp en það sjest þó illa vegna ryks og ljelegrar birtu
Svo sannarlega. Engin lifandi vera getur staðist það andlega álag að heyra Bea Arthur (dimmraddaða konan úr Gólden Görls) og Leiu prinsessu taka lagið á hæsta hljómstyrk.
Flautar sakleysislega
Gullgellurnar voru nú ágætar...
Sjálfspíningarkvötin hvetur mig til að horfa á þetta..
ég mun dempa eigin sársauka með því að plata annað fólk í að horfa á þetta með mér. Ef kvalirnar verða of miklar get ég bara snúið mér að því að horfa á þau engjast.