Nú er orðið ljóst að áform þau er nokkuð hafa verið rædd á þessum vettvangi hafa kvisast eitthvað út. Atburðir gærdagsins eru augljóslega eigi nein tilvljun:
(1) Fyrstu stóru sigrar Baggalútíu vinnast á hinu diplómatíska sviði (reyndar með smá aðstoð frá hátæknivæddu varnarliði í þeim tilgangi að fá fram skýr svör)
(2) Íslensku tónlistarverðlaunin bera óbein merki þess er lýst er í (1).
(3) Goggi nokkur Runni flytur ávarp þar sem lesa má milli línanna að í undirbúningi er allsherjar flótti til tunglsins og/eða Mars.
(4) Brenglaðar fréttir er þó má bera kennsl á birtast í hinum ýmsu falsmiðlum, sjá t.d. http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1066832 og http://edition.cnn.com/2004/BUSINESS/01/15/wto.sanctions/index.html þar sem augljóst er að ýmsir aðilar eru að reyna að vingast við oss með óbeinum hætti.
Mætur maður sagði: "einu sinni er tilviljun tvö skipti er ásetningur" Hver var maðurinn? dustar ósýnilegt ryk af gullslegnu barmmerki með áletruninni "Bagglútíu allt!"
Mætur maður sagði: "einu sinni er tilviljun tvö skipti er ásetningur" Hver var maðurinn? dustar ósýnilegt ryk af gullslegnu barmmerki með áletruninni "Bagglútíu allt!"
Churchill??
Flótinn heldur áfram, nú eru Goggi & co að kanna enn einn mögulegan flóttastað einhversstaðar á Mars skv. fréttum falsmiðlanna. Sjá t.d. http://news.bbc.co.uk/2/hi/science/nature/3428725.stm og er Arnold Schwarzenegger m.a.s. með í ráðum.
Tunglið má ekki taka Dóra
til sín upp í himna rann,
þá fer Dabbi að garga og góla,
og gerir landann,vitlausann.
Fór Dóri þá á skíði til tunglsins ??