Nú hefur því miður borið á útúrsnúningum úr nöfnum þekktra Gestapóa, s.s. Hakuchi, Síra skammkels og Limbra eftir því er vér munum nú.
Verða nöfn þeirra svoleiðis í meðförum athyglissjúkra nýliða: Hakuhci, skammkell og Limri.
Vér mælumst til þess af þeim er vilja vekja athygli á sjálfum sér að gera það á annan hátt, vegna mögulegs misskilnings og benda á að geti ákveðinn maður eigi fundið sér frumlegt nafn á hann að voru mati eigi samleið með Gestapóum.
Þótt ég sé nýliði kunni ég ekki nöfn allra Baghgalýtinga frá upphafi.
Glaður mun ég taka upp nýtt nafn, en ég vil helst ekki nýskrá mig aftur.
Ef þér viljið breyta nafni yðar þá skuluð þér senda póst til Enters og hann mun vafalaust vinna úr málunum fyrir yður.
Nú hefur því miður borið á útúrsnúningum úr nöfnum þekktra Gestapóa, s.s. Hakuchi, Síra skammkels og Limbra eftir því er vér munum nú.
Verða nöfn þeirra svoleiðis í meðförum athyglissjúkra nýliða: Hakuhci, skammkell og Limri.
Vér mælumst til þess af þeim er vilja vekja athygli á sjálfum sér að gera það á annan hátt, vegna mögulegs misskilnings og benda á að geti ákveðinn maður eigi fundið sér frumlegt nafn á hann að voru mati eigi samleið með Gestapóum.
Og ég endurtek að ef einhver fær að komast upp með skrifa í "mínu nafni" þá hverf ég fyrir fullt og allt af Gestapó.
-
Vonandi verður það aldrei að veruleika.
Limbri minn, þú ferð nú varla að láta svona barnaskap koma í veg fyrir að heiðvirðir Gestapóar fái að njóta nærveru þinnar. Örvæntir og grátbiður Limbra um að fara hvergi, sama hvað gerist

Því miður stend ég gallharður á þessu. Menn gætu svosem beðið ritstjórn um að frátaka öll nöfn sem líkjast mínu, sé þeim mikið í mun að ég láti mig ekki hverfa. En ég er mjög viðkvæmur fyrir að mér sé ekki lagt orð í munn.

En eftir 1-2 glös af léttpilsner þá tekur hann sér annaramanna orð í munn án þess að blikkna, hræsnari er hann Limbri Lottó.

En afhverju frátekur þú bara ekki sjálfur öll nöfn sem líkjast þínu? Klórar sér í höfðinu
Þá þyrfti hann líka að taka frá öll nöfn er líkjast nöfnum er líkjast hans nafni og síðan öll nöfn er líkjast nöfnum er líkjast nöfnum er líkjast nafni hans o.s.frv. þar til öll nöfn tilheyra honum. En þetta er reyndar þekkt í örlítið annarri mynd: Það hefur verið sýnt fram á að hjer á Gestapó eru í reynd einungis þrír gestir auk hugsanlega ritstjórnarinnar.
Annars erum vjer sammála Limbra.
Því miður stend ég gallharður á þessu. Menn gætu svosem beðið ritstjórn um að frátaka öll nöfn sem líkjast mínu, sé þeim mikið í mun að ég láti mig ekki hverfa. En ég er mjög viðkvæmur fyrir að mér sé ekki lagt orð í munn.
En eftir 1-2 glös af léttpilsner þá tekur hann sér annaramanna orð í munn án þess að blikkna, hræsnari er hann Limbri Lottó.
Það er ég sem á að segja svona hluti, íkorni.
Herra minn trúr. Haldiði ekki bara að glóparnir séu farnir að skola burt vegsummerkjum fyrir klósettsetum... ég skal staldra við og bíða eftir þér.
Hvað hefur eiginlega verið á seyði hér... þóttist einhver vera Skabbi í minni fjarveru?
Það var hérna einhver fúlskeggjaður fjandi með einhverja takta til þess, já. En hann fór nú leynt með það og var ekki til vandræða blessaður.
Leyfðu mér að giska, hann hefur búið til nafnið Skrabbi skumari...