Ræskir sig lágt og er lágróma og skömmustulegur halló allir...!
TINNI!
Voruð þjer í skrumgleypinum ? Ljómar upp og vonast eftir upplýsingum um innviði svarthola
Hvaða hvaða? og ég sem taldi nýja bók vera á leiðinni áður en þú myndir birtast okkur aftur?
Ég er alltaf að rekast á Tinna á förnum vegi og get vottað að hann var eigi í svartholi.
Sendir Tinna í skammarkrókinn
Tinni er ágætur. Að vísu getur hlaupið í hann smáborgari annað slagið, en það er bara í munninum honum. Hann meinar það ekki. Vill fólki bara vel.
Ég er alltaf að rekast á Tinna á förnum vegi og get vottað að hann var eigi í svartholi.
Er öruggt að þjer sjeuð þá eigi í svartholi líka ?
Halló. Sannarlega erum vjer ánetjaðir þótt vjer höfum haft hægt um oss undanfarið.
Gengur hljóðlega út af sviðinu
Ég er alltaf að rekast á Tinna á förnum vegi og get vottað að hann var eigi í svartholi.
Er öruggt að þjer sjeuð þá eigi í svartholi líka ?
Ég get nú ekki fullyrt um það. Starir þegjandi út í loftið
Vladimír, hví skyldi þeim ágætu drengjum Vamban og Tinna hafa verið í stungið í Svartholið, hvað ertu að gefa í skyn?
Eigi áttum vjer við svarthol í merkingunni fangelsi heldur skrumgleypinn illræmda, illvígt svarthol er leynist í klósetti Skabba skrumara sbr. eftirfarandi:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5394
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5462
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5587
Er þá kannski hægt að segja að Karíus og Baktus hafi lent í Skrumgleypinum, rétt áður en þeir komust upp á sjávarfleka út á ballarhafi?
Eigi höfðum vjer af þessum atburði frjett en miðað við þá lýsingu Tinna að þeir birtust allt í einu og upp úr þurru á einhverjum allt öðrum stað en þeir voru áður á kann að vera að þeir hafi lent í skrumgleypinum.