Varst þú maðurinn sem komst inn þegar ég lá í makindum á bekknum?
Ég sá hann ekki, heyrði bara í honum...
Hann hafði geðþekkan hlátur
Þá má vera að þetta hafi verið ég. Starir þegjandi út í loftið
En ég var mjög sáttur við plokkunina, litunin var nú bara í meðallagi.
Það mætti nú þynna augabrúnirnar aðeins meira sækir plokkarann
Það mætti nú þynna augabrúnirnar aðeins meira sækir plokkarann
Myndin var tekin fyrir plokkun, enda er ég enn með hár þarna. Núna er ég með munkaskalla og nafnið Ívar rakað í hliðarnar.
Brestur í óstöðvandi grát
Ég var að labba 12 kílómetra með 18 kg skólatösku á bakinu. Fékk blöðrur á iljarnar, líklega í fyrsta skipti á ævinni sem ég særist við það eitt að ganga. Fjandans þunga taska.
-
Ég var að skúra veggi og gólf fyrir komu Indlandsforseta.
Ég var í sólbaði.
Andskotinn... ég var líka að enda við að stinga glerbroti á kaf ofan í puttann á mér
Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skjótast til mömmu á Ferrarinum eða Porche-inum
Ég hef verið að reyna að sleppa því að koma á Gestapó. Ég sé núna að það er ekki góð hugmynd. Enda stalst ég alltaf til að lesa yfir þræðina þó ég væri ekki skráð inn. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Ég var á bókasafninu.
Ég var að horfa á Seinfeld þátt með spjalli þeirra Seinfelds og Larrys Davids bölvar íslenskum beygingum á erlendum nöfnum. Þeir gera ekkert annað en að hlæja að þættinum! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Andskotinn... ég var líka að enda við að stinga glerbroti á kaf ofan í puttann á mér
Nú, hittir þú kannski sömu leiðindastelpuna og dóttir mín?
Hún skipaði dóttur minni að skera sig á glerbroti sem áskorun.........
Og þegar mín gat/vildi ekki þá tók hún glerbrotið og skar í puttann á dóttur minni! Og hótaði henni svo ýmsu óskemmtilegu!