Eftir langa fjarveru hef ég tekið þá ákvörðun að snúa aftur hingað. Á þessum langa tíma sem að ég kom ekki hingað inn fann ég fyrir miklum tómleika og fann það að þurfti að fylla upp í þennan tómleika. Því hef ég tekið þá ákvörðun að snúa aftur hingað og valda einhverjum usla og vona að það nái að fylla upp í tómarúmið í mér. Hvernig lýst ykkur á það ?
Ich bin so wild nach deinem Erdbeermund.
Bara vel. Gaman að sjá þig Klaus.
Hvað ertu svo búinn að vera að gera í fjarverunni? Fannstu nýja vídd?
Ja hvur fjandinn Ljómar upp
Skemmtileg nýjung þessi flokkur Stekkur hæð sína
Aldeilis ágætt, hér get ég fengið útrás fyrir mæringar og skjall. Afar gott.
-
Mér líst mjög vel á þetta. Ég er viss um að þú getur orðið mjög fullur hérna. Ég er að minnsta kosti oftast fullur þegar ég hangi hér.
Sæll, Klaus. Velkominn aftur. Þar sem ég er frekar nýr og þú... eldri, þá hef ég ekki hitt þig fyrr. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Ég heiti Berserkur.
Ég þakka hlýjar móttökur.
Nornin: Hvað hef ég gert segirðu ? Tjah....hitt og þetta. Allt og ekkert. Ég týndi sjálfum mér en fann mig aftur, fór til heljar og til baka og ýmislegt fleira. Þetta er allt í þoku en ég held ég hafi áorkað einhverju. Hvað er að frétta af þér ?