Hvað er þetta? Kann enginn hér á einkapóstinn sinn? Eða eruð þið öll með popup blocker á vafraranum?
Ég er búin að senda 4 einkaskilaboð í morgun og bara eitt skilaði sér án aðstoðar.
Farið nú öll að kíkja í póstinn ykkar.
Ég er með svona varúðarráðstafanir en ég taldi þó að nafnið á skilaboðaskjóðunni ætti að verða rautt þrátt fyrir það. En það gerist ekki hjá mér í mínum Eldref.
-
Pósturinn er alveg að skila sér. En það er þetta varðandi að fá skilaboð um að maður hafi fengið nýjan póst.
-
Nú, hvernig ætlaru annars að vita að þú hafir fengið nýjan póst?
Uuuuuuu, ég er einmitt að segja það, ég fæ ekki skilaboð frá Gestapó varðandi að mér hafi borist póstur.
-
Ég er með pop-up blocker en valdi samt að láta ekki blokka pop-up glugga á baggalút, þannig fæ ég alltaf mín skilaboð um leið.
Annað sem ég er að sjá.
Ef maður fær upp gluggann um að póstur hafi borist og lokar honum ekki, þá koma ekki fleiri gluggar þó fleiri skilaboð berist.
Þetta er ágætt að því leiti að þá fyllist ekki allt af gluggum ef maður er að fá póst frá mörgum á sama tíma, en þá fæ ég heldur ekki að vita að nýr hafi borist.
Er ekki hægt að laga þetta? Hvar eru tækniórangútarnir?

Ef þú lokar glugganum strax, fyllist þá allt af gluggum ef margir senda einkapóst á stuttum tíma? Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
En hvernig er það annars, fáið þið ekki tölvupóst í hvers sinn sem einkaóstur berst? Það finnst mér alveg ómissandi, því þannig get ég fengið mikið af tölvupósti á frekar stuttum tíma, ef þannig stendur á. Og þá hefur mail filterinn minn nóg að gera við að henda þeim pósti... Glottir eins og fífl
Ég fæ einmitt aldrei svona popup.. og dæmið verður heldur aldrei rautt hjá mér.. en hinsvegar þá lætur msn mig yfirleitt vita að ég sé komin með skilaboð.
Varúð: Óheflað málfar fylgir hér fyrir neðan.
Úúú - hotmail addressa. Afar 1337.
Sjálfur fæ ég popup þar sem ég leyfi auðvitað heimsins bestu heimasíðu að sýna mér hvað sem henni þóknast. Það dugar mér ágætlega.
Póstfang Tigru er að finna á Gestapósíðu hennar.
Ritstjórn á skilið hrós fyrir þetta frábæra skilaboðakerfi!
Vissulega!
Póstfang Tigru er að finna á Gestapósíðu hennar.
Bannað að kjafta!!